Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Afstaða til hvíldardagsins.

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hverjir eru litir kirkjuársins?
  2. Skráning í sambúð og hjónavígsla
  3. Hvað er djákni?
  4. Barnaskírn og Biblían
  5. Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan
  6. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?

Hvað er að halda hvíldardaginn heilagan?

Steinn spyr:

Í biblíunni stendur að maður eigi að halda hvíldardaginn heilagan. Er þá bannað að fara í búð á sunnudögum?

Íris Kristjánsdóttir svarar:

Góð spurning.

Líklega er best að velta því fyrst fyrir sér hvað þýði að hvíldardagurinn sé heilagur. Heilagur merkir hérna frátekinn – frátekinn fyrir Guð. Boðið um heilagleikann birtist í þriðja boðorðinu og tengist auðvitað sköpunarfrásögu 1. Mósebókar, þar sem segir frá því að Guð hvíldist sjöunda daginn eftir að hafa skapað heiminn og allt sem í honum er á sex dögum. Þessi dagur á að vera helgaður skaparanum, manninum til líkamlegar og andlegrar uppbyggingar. Samkvæmt hefðinni er hvíldardagurinn á laugardegi, síðasta dag vikunnar, en innan kristinnar hefðar hefur hvíldardagurinn færst yfir á sunnudag, því þann dag, fyrsta dag vikunnar, reis frelsarinn Jesús Kristur upp frá dauðum.

En hvað má þá gera á hvíldardegi? Innan gyðinglegrar hefðar voru strangar reglur um hvað mátti og hvað mátti ekki gera á hvíldardegi. Í stuttu máli mátti ekki á hvíldardegi vinna líkamlega vinnu, gera eitthvað sem reyndi á. Jesús fékk skammir frá fræðimönnum úr hópi gyðinga fyrir að gera ýmis viðvik á hvíldardegi, t.d. að tína kornöx með lærisveinum sínum, og lækna fólk. Manni kemur í hug að ef slíkar reglur væru við lýði í dag, nú þá yrði t.d. að loka sjúkrahúsum til að halda daginn heilagan! Það vill nú enginn!

En hver voru viðbrögð Jesú við ákúrum fræðimannanna? Jú, hann sagði hvíldardaginn hafa orðið til mannsins vegna, en ekki maðurinn vegna hvíldardagsins. Þar átti hann við að reglan um helgi þessa dags var gerð okkar vegna, ekki reglunnar vegna. Það er okkur til góðs að eiga minnst einn dag í viku til hvíldar, til að endurhlaða rafhlöðurnar og búa okkur undir næstu vikuna. Það er okkur líka til góðs að beina huga okkar á sérstakan hátt til Guðs á þessum degi, innan samfélags kirkjunnar, og enduhlaða andlegu rafhlöðurnar. Í ljósi alls þessa má svo velta fyrir sér spurningunni um búðarrápið á sunnudögum. Það er ekkert svo langt síðan að allar búðir, líka matvörubúðir, voru lokaðar um helgar – ég man vel þá tíð! Í dag erum við svo vön því að allt sé opið, næstum alla daga, að við verðum hálf svekkt ef við uppgötvum á sunnudegi að okkur vantar eitthvað og við getum ekki skotist strax og keypt það.

Hvernig er þá komið fyrir okkur? Svar við spurningunni liggur í því hvaða merkingu við sjálf leggjum í heilagleikann sem tengist hvíldardeginum. Heilagleikinn snýr að sambandi okkar við Guð og hvort við viljum helga honum einn dag vikunnar. Ef svo er þá má spyrja sig hvort búðarráp falli inn í þá mynd. Því verður hvert og eitt okkar að svara. En væntanlega hefði Jesús Kristur ekki orðið spældur ef búðarrápið væri til að útvega nauðsynjavöru, líkt og þegar hann og lærisveinarnir tíndu kornöx á leið sinni, sér til viðurværis. Umfram allt er mikilvægt að þessi dagur sé helgaður Guði - það er númer eitt, tvö og þrjú.

Bestu kveðjur,
Íris

6/8 2006 · Skoðað 2524 sinnum


Ummæli frá lesendum

  1. Halldór skrifar:
    Nokkur atriði sem ég er ósammála. Í fyrsta lagi er hvíldardags boðorðið það fjórða samkvæmt Biblíunni. Að breyta því eina sem Guð sjálfur skrifaði í stein er ekki gáfulegt að mínu mati. Síðan er það ekki samkvæmt hefðinni að hvíldardagurinn er laugardagur, það er samkvæmt Biblíunni. Að tilbiðja á sunnudegi er samkvæmt hefðinni.
  2. Kristján Ari skrifar:
    Já ég er samála Halldóri, Guð blessaði laugardaginn, sjöunda daginn, ekki sunnudaginn og því ættum við öll að halda hvíldardaginn, laugardag, því annars erum við að hunsa Guð á þeim deigi sem hann blessaði og hvíldist sérstaklega á. Mig langar líka til að taka fram þar sem Jesús læknaði og gerði gott á hvíldardögum, hví ættum við ekki meiga gera slíkt hið sama!

Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.

Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar