Svör sem birt voru í sama mánuði
Greipur Hjaltason spyr:
Hvert er hlutverk þjóðkirkju íslands?
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir svarar:
Sæll, Greipur og takk fyrir spurninguna.
Í stefnumótun Þjóðkirkjunnar var sett fram lýsing á grundvelli og hlutverki Þjóðkirkjunnar. Ég vona að það svari spurningu þinni að skoða það, ef ekki skaltu hafa samband aftur.
Grundvöllur
Íslenska Þjóðkirkjan er evangelísk lútersk kirkja, hluti hinnar heilögu almennu kirkju er biður, boðar og þjónar í nafni Jesú Krists um heim allan.
Kristin kirkja er fólk sem kallað er til samfélags við Guð og við hvert annað í trú, von og kærleika. Andi Guðs knýr kirkjuna til að boða og vitna um Jesú Krist í orði og verki. Kirkjan byggir á Biblíunni og vitnisburði hinna fyrstu kristnu um hinn krossfesta og upprisna Jesú Krist og þeim lífsviðhorfum sem felast í þeim boðskap.
Kristin kirkja og fólkið í landinu hafa átt samleið frá upphafi byggðar. Kristin trú og siður eru samofin sögu þjóðarinnar og eru mótandi afl í samfélaginu. Þjóðkirkjan vill miðla komandi kynslóðum hinum kristna arfi og vera vakandi fyrir nýjum tækifærum og leiðum í starfi sínu sem helgast af bæn, boðun og þjónustu.
Hlutverk
Hlutverk Þjóðkirkjunnar er að boða og iðka kristna trú á þann veg að sérhver einstaklingur er tekur á móti boðskapnum um Jesú Krist:
Játi trú á Guð, höfund alls lífs, og leiti leiðsagnar hans í lífinu
Finni þörf sína fyrir nærveru og gæsku Guðs
Beri virðingu fyrir sköpun Guðs
Virði helgi og gildi hverrar manneskju
Haldi í heiðri boðorð Guðs
Trúi á Jesú Krist sem frelsara og fyrirmynd og sýni þá trú í orði og verki
Setji traust sitt á Jesú Krist og orð hans
Beri umhyggju fyrir öðrum sem svar við elsku Guðs
Iðrist og fyrirgefi eins og Guð fyrirgefur
Sýni umburðarlyndi og stuðli að réttlæti og friði í samskiptum við annað fólk
Styrkist í trú, von og kærleika með hjálp heilags anda
Eigi samfélag við Guð í bæn, orði Guðs, skírn og altarisgöngu
Kynnist krafti og gleði trúarinnar í samfélagi safnaðarins
Sýni örlæti og hjálpsemi sem svar við góðum gjöfum Guðs
Eflist í von um eilíft líf með Guði
Þjóðkirkjan rækir hlutverk sitt með því að:
Boða, biðja og þjóna í helgihaldi.
Fræða um kristna trú og siðferðisgildi.
Sinna kærleiksþjónustu, hjálparstarfi og kristniboði innanlands og utan.
Starfa um land allt í söfnuðum þar sem fjölskyldur og einstaklingar eiga athvarf á stundum gleði og sorgar.
Liðsinna hverjum þeim sem þarfnast stuðnings.
Standa vörð um kristna trúar- og menningararfleifð á Íslandis
Miðla af reynslu systurkirkna um heim allan.
Kveðja,
Adda Steina.
10/5 2006 · Skoðað 2171 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit