Svör sem birt voru í sama mánuði
Eyvar Örn Geirsson spyr:
hverju breytir það trúalega ef að Jesús kristur og María Magdalena giftust og eignuðust afkomendur? breytir það einhverju um fagnaðar erindið um Jesús Krist og ef ekki afhverju er þá öll þessi mótmæli?
Magnús Erlingsson svarar:
Komdu sæll.
Í Níkeujátningunni eru tekin saman þau helstu trúarsannindi, sem kristnir menn hafa játast undir. Þar segir skýrum orðum að Jesús sé sannur Guð og maður. Jesús er Drottinn vegna þess að Guð birtist í honum, var í honum. Og hann er líka maður eins og ég og þú. Það merkir að barnið Jesú var eins og önnur börn; saug brjóst móður sinnar, grét og skríkti. Guðspjöllin draga upp mjög trúverðugua mynd af manninum Jesú, sem bæði gat fundið til, reiðst og elskað. Ef einhver heldur því fram að óhugsandi sé að Jesús hefði getað orðið ástfanginn þá er sá hinn sami ósammála Níkeujátningunni.
Það myndi engu breyta um fagnaðarerindi Jesú Krists ef í ljós kæmu sannanir um hjónaband hans og Maríu Magdalenu. Ég fæ ekki séð neina skynsamlega ástæðu fyrir því að kirkjan ætti að fela slíka hluti ef sannir væru. Hjónavígsla er helg athöfn í okkar kirkju og sakramenti hjá katólsku kirkjunni. Þá kemur það fram í Nýja testamentinu að sumir postulanna eins og Símon Pétur voru kvæntir.
Af hverju eru þá öll þessi læti? Það er vegna þess að í Da Vinci lyklinum er það fullyrt að kirkjan hafi afbakað kenningar Jesú Krists og innan kirkjunnar sé í gangi samsæri um að kæfa sannleikann um Krist. Í Da Vinci lyklinum er því í raun haldið fram að trúarjátningar kirkjunnar um að Jesús sé sannur Guð, séu ekkert annað en lygi. Við hverja skírn, við hverja fermingu, í hverri messu játum við það að Jesús sé Drottinn. Þetta er grundvallaratriði okkar kristnu trúar. Og nú er því haldið fram í metsölubók að þetta sé lygi! Auðvitað hljótum við að mótmæla því kröftuglega.
Í upphafi Da Vinci lykilsins fullyrðir höfundurinn að allar upplýsingar í skáldsögu hans séu byggðar á nákvæmum bakgrunnsrannsóknum. Þetta er óvanaleg fullyrðing því yfirleitt er tekið fram í skáldsögum og bíómyndum að sökum listrænna sjónarmiða og söguframvindu hafi ýmsu verið hnikað til þótt á öðrum stöðum sé byggt á sönnum atburðum. Enginn slíkur fyrirvari er hjá höfundi Lykilsins heldur þvert á móti þá fullyrðir hann að öll atriði í sögu hans séu sannleikur. Hvílík ósannindi! Listfræðingar brosa að útskýringum hans á málverki Da Vincis af heilagri kvöldmáltíð. Og trúarbragðafræðingar hrista höfuðið yfir að því sé haldið fram að Jesús hafi í reynd verið boðberi einhverrar gyðjudýrkunnar þar sem skaut kvenna er álitinn miðpunktur alheimsins. Trúir einhver því í alvörunni að Frakkakonungar eða eitthvað annað kóngafólk séu afkomendur Jesú Krists? Eru kóngar og drottningar guðlegrar ættar?
Höfum það sem sannara reynist.
Magnús Erlingsson
26/5 2006 · Skoðað 3540 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit