Svör sem birt voru í sama mánuði
Ævar spyr:
Í Da Vinci lyklinum er mikið talað um Opus Dei, hvað er það eiginlega?
Þórhallur Heimisson svarar:
Opus Dei er Leikmannahreyfing innan kaþólsku kirkjunnar sem hjálpar leikmönnum (ekki vígðum) að leita helgunar í daglegu lífi sínu og starfi. Hreyfingin var stofnuð árið 1928. Hún styður leikmenn til að lifa samkvæmt köllun hins kristna manns í lífi sínu. Markmið Opus Dei er að kalla alla menn til heilags lífernis á grundvelli þess að sérhver maður sé heilagur sérstaklega heilags lífernis í daglegum skyldum.
Stuðningurinn er veittur á helgarsamverum, með námskeiðum, bænastundum, fræðslukvöldum og andlegri leiðsögn. Allir eru velkomnir að taka þátt í starfi Opus Dei, sem er ekki leynihreyfing heldur opin bæði félögum og öðrum sem vilja efla andlegt líf sitt og leita helgunar.
Styður þessi leikmannahreyfing páfann og hina kaþólsku trú.
Kveðja,
Þórhallur
Bæklingur eftir Þórhall Heimisson með skýringum við Da Vinci lykilinn fæst hjá Hafnarfjarðarkirkju. Allur ágóði af sölu hans rennur í orgelsjóð Hafnarfjarðarkirkju.
16/5 2006 · Skoðað 3350 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit