Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  2. Gifting erlendis
  3. Hjónavígsluspurningar
  4. Hvert er hlutverk svaramanna
  5. Borgaraleg hjónavígsla

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Tilvist álfa og huldufólks
  2. Hvað er kristsgervingur í kvikmynd?
  3. Hvers vegna höldum við páskahátíð og hvítasunnu?
  4. Þarf útför að fara fram í kirkju?
  5. Merking orðanna, Ef Guð er með oss hver er þá á móti oss?

Trúlofunarhringur á hendi

Heiðrún spyr:

Ég er að velta fyrir mér hefðum í sambandi við trúlofun. Á hvorri hendi eiga trúlofunarhringarnir að vera? Á síðan að færa þá yfir á hina hendina við giftingu??

Arna Grétarsdóttir svarar:

Sæl Heiðrún.

Sú hefð eða venja sem ég þekki er sú að trúlofunarhringarnir eru settir upp á baugfingur vinstri handar, því sú hönd er nær hjartanu. Við giftingu eru hringarnir gjarna færðir yfir á hægri höndina sem tákn um þann samning eða sáttmála sem handsalaður er þegar gengið er í hjónaband. Hjónaefnin takast í hendur í hjónavígslunni og innsigla þannig þann ásetning sinn að lifa saman í hjónabandi.

Einu sinni sagði mér eldri prestur að giftingarhringarnir væru alltaf á hægri hönd til þess að þeir væru sýnilegir þegar ókunnu fólki væri heilsað, það gæti þá auðveldlega séð að um kvænta/gifta manneskju væri að ræða. Því væri ekki hætta á því að hinn kvænti eða hin gifta yrði fyrir óþarfa ástleitni. Einnig gaf hjónabandið, hér áður fyrr, fólki ákveðna stöðu og virðingu í samfélaginu og gerir líklega enn þó með öðrum hætti sé.

Gangi þér vel,
Arna Grétarsdóttir

28/4 2006 · Skoðað 5464 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar