Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Svartur litur og jarðarfarir
  2. Kistulagning og lokun kistu
  3. Þegar kista er borin út
  4. Hve lengi má lík standa uppi?
  5. Trúin og útförin

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Geta konur orðið biskupar?
  2. Hver var Einar í Heydölum?
  3. Hvað er trúboð?
  4. Hvar finn ég orð dagsins?
  5. Hver er leiðin til himna?

Hvernig á kista að snúa í gröf?

Magnús spyr:

Þegar kista er lögð í gröf, hvort er henni þá snúið þannig að krossinn eða legsteinn á leiði verði við höfuðlag eða við fætur þess látna?

Þorvaldur Víðisson svarar:

Komdu sæll Magnús og þakka þér fyrir spurningu þína.

Það er misjafnt hvort krossinn/steinninn er við fóta eða höfuðlag. Hin kristna venja er sú að ásjóna hins látna snýr í austur, til rísandi sólar. Það snúa því allir eins í kirkjugörðum okkar kristnu meðbræðra og systra, hvorum megin við göngustíg sem legstæðið er. Krossinn eða steinninn er hins vegar að jafnaði lengra frá götunni og er því á víxl við fóta og höfuðgafl. Ég vona að þessi fáu orð svari vangaveltum þínum.

Með góðum kveðjum,
Þorvaldur Víðisson.


22/3 2006 · Skoðað 3188 sinnum


Ummæli frá lesendum

  1. Hrönn Magnúsdóttir skrifar:
    Þessi tilhögun með að láta krossa og legsteina vera til fóta er fáránleg ! og það mætti sýna þeim látnu og eftirlifandi þá lágmarksvirðingu að láta vita af þessari tilhögun þegar að legstaður er valinn. Hjá sumum skiptir þetta mjög miklu máli, og þeir sem að hafa lagt blessun sína yfir þessi vinnubrögð ættu að skammast sín ! Hrönn Magnúsdóttir
  2. Þorvaldur Víðisson skrifar:
    Komdu sæl Hrönn! Á heimasíðu Kirkjugarðasambands Íslands stendur eftirfarandi samantekt: ,,Kirkjur snúa í austur og vestur þar sem þær horfa mót austri til birtunnar. Helstu ástæður fyrir þessari legu voru trúarlegs eðlis. Í austri lá Edensgarður (1. Mós. 2.8), í austri rann Betlehemsstjarnan upp (Matt. 2.9) og eldingin sem tákn endurkomu Krists leiftrar frá austri til vesturs (Matt. 24.27). Uppstigning Jesú Krists á Olíufjallinu var austan Jerúsalems og úr austri væntu menn endurkomu hans. Sólin rís í austri og þannig varð sérhver sólarupprás tákn fæðingar hans, upprisu og endurkomu. Altarið, sem er aðalsvæði kirkjunnar, er í austurenda hennar. Fólk beinir bænum sínum að altarinu í eftirvæntingu vonarinnar og sömu von tjá hinir látnu í kirkjugarðinum. Hinir látnu eru lagðir til hvíldar með andliti horfandi á móti austri, í sólarátt. Sama má segja um útfarir hinna látnu þar sem andlit hins látna snýr í átt til altarisins, í austur til upprisunnar. Vestur er hins vegar andstæðan. Vestur er tákn glötunar og sólarlag tákn dauða." Mikil táknfræði er því tengd kirkju og kirkjugörðum. Varðandi merkingu leiðanna þá er það til siðs að hún sé ávallt lengra frá götunni svo auðveldara sé að lesa þar á og umgengni verður með því snyrtilegri. Þetta atriði er að öllu jöfnu alltaf nefnt við aðstandendur þegar legstaður er valinn. Með góðum kveðjum, Þorvaldur prestur í Vestmannaeyjum.

Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.

Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar