Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan
  2. Skírnarvottar og skráning í Þjóðkirkjuna
  3. Hver sér um skráningu í trúfélög?
  4. Hvernig skrái ég mig í Þjóðkirkjuna?
  5. Eru öll börn skráð í Þjóðkirkjuna við fæðingu?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Gifting erlendis
  2. Stundum virkar þjóðkirkjan flókin stofnun
  3. Hvað eru sakramentin mörg?
  4. Hvert er hlutverk guðforeldra?
  5. Aldur Maríu við fæðingu Jesú

Hvers vegna er Boðunarkirkjan ekki með í samkirkjulegri bænaviku

Ómar Scheving spyr:

Guð minn heitir Jesús Kristur. Hvers vegna er Boðunarkirkjan ekki með í sameiginlegri bænaviku?

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir svarar:

Sæll, Ómar og takk fyrir spurninguna.

Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika hefur verið haldin hér síðan 1968. Hún er opin öllum og samkomur eru auglýstar fyrir almenning.

Efni bænavikunnar kemur frá Alkirkjuráðinu og kaþólsku kirkjunni. Á hverju ári er kirkjum á ákveðnum stað falið að starfa saman að því að undirbúa það, velja yfirskrift, ritningartexta, bænir og hugleiðingar. Þetta er síðan sent út til kaþólskra kirkna og aðildarkirkna Alkirkjuráðsins, Word Council of Churches - einnig þýtt heimsráð kirkna. Hér á landi á Þjóðkirkjan aðild að ráðinu.

Að undirbúningi bænavikunnar hérlendis stendur samstarfsnefnd kristinna trúfélaga. Í henni eiga sæti Kirkja Aðventista, Fríkirkjan Vegurinn, Hvítasunnukirkjan, Hjálpræðisherinn, Íslenska Kristkirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan. Samstarfsnefndin hefur vaxið undanfarin ár. Hún hefur sett sér reglur og í þeim segir meðal annars að trúfélög sem eru amk fimm ára og hafa amk 200 meðlimi og opið bókhald geti verði aðilar að nefndinni.

Bænavikan er að sjálfsögðu gott tækifæri fyrir kristið fólk að koma saman, hvort sem það tilheyrir undirbúningshópi vikunnar eða ekki. Verið innilega velkomin á næstu bænaviku sem hefst 16. janúar 2007.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnastjóri
samkirkjumál

24/2 2006 · Skoðað 2610 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar