Svör sem birt voru í sama mánuði
Ásgeir Helgi Magnússon spyr:
Hvað eru mörg sakramenti í lútherskri trú?
Jóhanna Ingibjörg Sigmarsdóttir svarar:
Sæll Ásgeir Helgi.
Sakramentin í lútherskri trú eru tvö, skírn og kvöldmáltíð. Orðið sakramenti merkir „leyndardómur“ það er í raun heilög athöfn, sem boðar okkur fagnaðarerindi og gefur okkur leyndar (ósýnilegar) gjafir.
Samkvæmt lúthersk - evangeliskum skilnningi þarf þrennt til þess að athöfn geti kallast sakramenti.
Í fyrsta lagi innsetningarorð Jesú
Í Mattheusarguðspjalli 28. 18-20 eru orð Jesú sem eru lesin við hverja skírn. Innsetningarorð heilagrar kvöldmáltíðar eru úr Mattheusarguðspjalli 26. 26-28 og í Lúkasarguðspjalli 22.19-20.
Í öðru lagi sýnilegt, jarðnesk efni: Í skírninni vatn og í kvöldmáltíðinni brauð og vín.
Í þriðja lagi fyrirheit um náð, andlega gjöf.: Í skírninni verðum við meðlimir í kirkju Krists og í kvöldmáltíðinni fáum við fyrirgefningu syndanna og samfélag við Guð, játum því að við þurfum á frelsara að halda minnumst þess sem Jesús gjörði fyrir okkur og þökkum það.
Þegar sakramenti er skýrgreint á þennan hátt er aðeins hægt að finna tvær athafnir sem uppfylla þessi skilyrði.
Með bestu kveðju,
Jóhanna I. Sigmarsdóttir
21/2 2006 · Skoðað 2549 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit