Svör sem birt voru í sama mánuði
Jóhanna spyr:
Góðan daginn,
Hvað nefnist höfuðfat biskupa?
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Sæl Jóhanna.
Höfuðfat biskupa heitir á íslensku mítur. Það er einskonar há topphúfa með tveim stuttum borðum niður úr húfubarðinu aftanvert. Mítur er eins og biskupsstafurinn sem heitir bagall, fornt tákn um embætti og umsjón biskupsins. Mítur var upphaflega eingöngu höfuðfat páfans í Róm. Fyrir um það bil þúsund árum, eða um miðja 11.öld, var ákveðið að páfi gæti veitt biskupum og ábótum leyfi til að bera mítur. Líklegt er þess vegna að fyrsti íslenski biskupinn, Ísleifur Gissurarson hafi borið mitur. Í kaþólsku kirkjunni er það fastur siður að biskup ber mítur, samkvæmt ákveðnum reglum þar um, og einnig í orthodox kirkjunum, en mítur orthodox biskupa er með öðru sniði í flestum kirkjum.
Við siðaskiptin voru embættistákn biskups, mítur og bagall, víða lögð af í evangelisk-lútherskum kirkjum, en þó ekki allsstaðar. Skrúði kirkju og presta var víða einfaldaður á sama tíma. Líklegt er að mítur og bagall hafi horfið úr notkun hér á landi um miðja 16.öld.
Með endurreisn í kjölfar hinna líturgisku hreyfinga á 20.öld var fjölbreytni í skrúða aukin. Sigurbjörn Einarsson, biskup og Sigurður Pálsson, vígslubiskup tóku báðir upp notkun míturs sem þeir báru ásamt biskupskápunni, sem er hið hefðbundna tákn biskups hér hjá okkur, ásamt biskupskrossinum. Pétur Sigurgeirsson, biskup bar einnig mítur og síðar Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands ber ekki mítur og á ekki bagal.
Ekkert mælir þó gegn því að biskupar þjóðkirkjunnar beri mítur rétt eins og kápu.
Kristján Valur
7/1 2006 · Skoðað 2175 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit