Svör sem birt voru í sama mánuði
Pétur spyr:
Hvaða kirkja er elsta kirkja á Íslandi?
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Sæll Pétur og takk fyrir spurninguna.
Almennt er Hóladómkirkja talin elsta kirkja landsins. Hún er reist á árunum 1757-1763 og var teiknuð af Laurids de Thurah. Hann var þekktur danskur húsameistari. Þegar Hóladómkirkja var reist var Gísli Magnússon (1712-1779) biskup á Hólum.
Mögulegt er að önnur kirkja í Skagafjarðarprófastsdæmi sé eldri en Hóladómkirkja, að minnsta kosti að stofni til. Það er kirkjan að Gröf á Höfðaströnd. Talið er að rekja megi byggingarsögu hennar aftur á 17. öld og jafnvel lengra. Það er þó óljóst, t.a.m. ekki er vitað að hve miklu leyti sú kirkja var endurbyggð af Gísla Þorlákssyni, biskupi. Þá var efni kirkjunnar endurnýjað um miðja 20. öld.
Heimildir
Kirkjur Íslands, 6. bindi, bls. 63 og áfram (um Grafarkirkju), bls. 159 og áfram (um Hóladómkirkju).
Ég vona að þetta svari spurningunni,
kveðja,
Árni Svanur
15/12 2005 · Skoðað 2052 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit