Svör sem birt voru í sama mánuði
Guðmundur Brynjólfsson spyr:
Hvaða Biblíu útgáfa (þýðing) er líklegast að hafi verið algengust meðal almennings á Englandi á árunum 1905-1920?
Einar Sigurbjörnsson svarar:
Komdu sæll.
Árið 1611 kom út á Englandi ný þýðing Biblíunnar sem smám saman ávann sér þann sess að vera nefnd Authorized Version of the Bible. Konungurinn Jakob 1. (1566-1625, konungur á Englandi frá 1604) hafði skipað fyrir um þýðinguna og því er þessi þýðing oft kennd við hann og nefnd King James´ Version of the Bible. 1885 var gefin út á Englandi endurskoðun á þessari þýðingu sem nefnist The Revised Version of the Bible. Hin upprunalega King James Version eða Authorized Version hefur þó alltaf notið meiri hylli en endurskoðunin. Hún var sú biblía sem lesið var úr við guðsþjónustur í flestum kirkjum og mest lesin af fólki, rithöfundar vitna helst í þá útgáfu í ritum sínum og þannig mætti lengi telja.
Það eru ýmsar grínsögur sagðar um hylli Authorized Version, sumt fólk kallar hana St. James Version of the Bible. Og þegar umræður voru um nýju ensku Biblíuna á árunum upp úr 1960 er haft eftir fólki sem setti sig upp á móti nýjungum: If St. James was good enough for Jesus, it is good enough for me!
Það er því langsennilegast að Authorized Version frá 1611 hafi verið sú útgáfa Biblíunnar sem helst var lesin á Englandi á því tímabili sem þú spyrð um.
Kveðja,
Einar
14/12 2005 · Skoðað 2352 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit