Svör sem birt voru í sama mánuði
Björk spyr:
Getur maður fermst á hvaða aldri sem er?
Sigurður Grétar Sigurðsson svarar:
Sæl Björk og takk fyrir spurningu þína.
Í okkar kirkju ríkir sú hefð að unglingar fermist við lok 8. bekkjar. Það er þó ekkert skilyrði og mörg dæmi um það að unglingar fermist amk. ári fyrr eða eitthvað seinna. Stundum er það vegna þess að systkini fermast saman. Almenna reglan er þó sú að manneskja fermist ekki nema að hafa lokið fermingarfræðslu á vegum kirkjunnar. Sú fræðsla fer formlega fram í 8. bekk.
Á þeim aldri er gengið út frá því að fermingarbörnin hafi aldur og þroska til að taka þessa afstöðu sem fermingin er, þ.e. hafi þroska til að ákveða hvort þau vilji gera Jesú krist að leiðtoga lífs síns. Nokkur dæmi þekki ég einnig um að fullorðið fólk hafi fermst þó þau hafi e.t.v. ekki fermst með hópi af unglingum.
Ég vona að þetta svari spurningu þinni nægilega vel.
Kveðja,
Sigurður Grétar,
prestur á Hvammstanga
28/11 2005 · Skoðað 2581 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit