Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvert er álit kirkjunnar á dýrlingadýrkun?
  2. Má fermast á hvaða aldri sem er?
  3. Hvaða afstöðu hefur kirkjan gagnvart kraftaverkum?
  4. 10 messur fermingarbarna
  5. Hver er staða kynjanna í kristnu samfélagi?
  6. Hvernig er fermingin hugsuð?

Hver er afstaða kirkjunnar til neyslu?

Valgeir Jónsson spyr:

Hver er afstaða kirkjunnar til neyslu? Er hún tvíþætt, að vera á móti einu og með hinu? Er hún kannski miklu víðtækari og flóknari en það? Hvar eru mörkin þegar lifibrauðinu er sleppt?

Carlos Ferrer svarar:

Sagt hefur verið að syndir gærdagsins eru ósiðir dagsins í dag. Mikið hefur breyst frá þeim tíma að boðorð biblíunnar höfðu nánast lagagildi og langir listar yfir dyggðir og syndir leiðbeindu fólki um rétt og rangt. Mestu skiptir í kristinni siðfræði að orð Guðs eitt og sér dugir ekki til þess að eitthvað sé synd eða ekki. Við leitum að réttu og röngu í samskiptum okkar, í afleiðingum gjörða okkar og lífsviðhorfum. Við hlið biblíunnar, hefða og viðtekinna venja eru komin ákvæði um almenn réttindi manna og skynsemi til þess að leiðbeina okkur.

Ef við horfum á þær syndir sem kirkjan taldi til dauðasynda, þá er ljóst að græðgi, óhóf, hroki telst til þeirra. Ekki matur og drykkur sem slíkur heldur misnotkun þessa. Afstaða kristninnar mótast af orðum Páls postula um að allt sé leyfilegt en ekki endilega gagnlegt. Frekar en að búa til lista yfir boð og bönn, synd og ekki synd þá leggur kristnin það í hendur okkar að finna úr því hvað er gagnlegt og hvað ekki.

Tvíkvæni er til að mynda ekki leyfilegt. En á trúboðsakrinum hefur yfirstandandi kynslóð tiltekinna þjóðflokka verið leyft að lifa í tví- og margkvæni frekar en að hinn margkvænti sendi frá sér eiginkonu(r), þá e.t.v. á vergang. Næsta kynslóð er hvött til að láta margkvænið síðan vera. Þarna má sjá þá aðferð kristninnar að horfa á fyrirbærin út frá kærleiksboði Jesú Krists, að sýna elskuna í verki en láta ekki boðorð verða til þess að menn og konur bíði skipbrot.

Of- eða vanneysla matar og drykkja getur leitt vansæld og böl yfir marga. Við getum fyllst sektarkennd yfir því að borða of mikið. Við sveltum okkur til að ná einhverjum útlitsstaðli sem er okkur ekki eðlilegur. Þegar neysla okkar og athæfi gengur á heilsu okkar þá hættir hún að vera gagnleg. Hegðun okkar og líf getur skaðað annað fólk, valdið því áhyggjum eða bundið það í óheilbrigð hegðunarmynstur á borð við meðvirkni.

Carlos Ferrer
sóknarprestur

8/11 2005 · Skoðað 2397 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar