Svör sem birt voru í sama mánuði
Toni spyr:
Hvað felst í því að vera samverkamaður Guðs?
Karl Sigurbjörnsson svarar:
Orðalagið kemur fyrir hjá Páli postula, 1.Kor. 3.9:„Því að samverkamenn Guðs erum vér.” Það vers má reyndar eins þýða: „Því að vér erum samverkamenn í Guði.” Samkvæmt orðanna hljóðan er að vera samverkamaður Guðs það að taka þátt í verki Guðs, skaparans, lausnarans.
Hugsunina má sjá í orðalagi sköpunarsögunnar að Guð skapar manninn í sinni mynd. Guð skapar manninn til að taka þátt í sköpunarverki sínu. Að vera í Guðs mynd er samkvæmt því að hlynna að lífinu, hamla gegn því sem eyðir því og spillir, vinna með Guði að heill lífs og heims.
11/11 2005 · Skoðað 2487 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit