Svör sem birt voru í sama mánuði
rannveig spyr:
Afhverju þurfum við að fara í 10 messur þegar við fermumst? Er eitthver ástæða? Hver er meiningin?
Endilega sentu svar eins fljótt og hægt er ;)
Rannveig, fermingabarn
Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:
Komdu sæl.
Á vefnum er birt svar við spurningu sem er þessari lík:
http://kirkjan.is/svor/2005/03/timafjoldi_i_fermingarfraedslu
Þarna kemur fram að skv. námsskrá fermingarstarfanna er miðað við að fermingarbörn taki þátt í kirkjustarfi og helgihaldi. Það er undir prestinum í hverri sókn komið hvernig fermingarfræðslan er útfærð, en tilgangurinn er sá að fermingarbörnin kynnist lífi og starfi kirkjunnar. Slíkt er ekki hægt án þess að taka þátt í því.
Bestu kveðjur,
Árni Svanur og Irma Sjöfn
23/11 2005 · Skoðað 2745 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit