Svör sem birt voru í sama mánuði
ingi hrafn stefánsson spyr:
Ég fór í Hallgrímskirkju þegar Kirkjulistarhátíðinni var að ljúka. Sýningin í kirkjunni eftir hana Rúrí var flott. Vitið þið nokkuð hvenær næsta Kirkjulistarhátíð verður haldin?
Guð veri með ykkur,
kær kveðja
Ingi Hrafn
Inga Rós Ingólfsdóttir svarar:
Blessaður.
Í ljósi þess hve vel gekk stefnum við að því að halda næstu hátíð að 2 árum liðnum á sama tíma.
Allir eru svo glaðir og ánægðir með hve vel gekk, að hamingjuóskirnar streyma hvaðanæva að , jafnt frá erlendu listamönnunum og innlendu ásamt öllum öðrum sem upplifðu sjálfir hátíðina eða eru spældir að hafa misst af henni!
Bestu kveðjur
Inga Rós
23/9 2005 · Skoðað 2409 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit