Svör sem birt voru í sama mánuði
Hjalti Rúnar spyr:
Hver er opinber afstaða Þjóðkirkjunnar til frásagna í Gamla Testamentinu s.s. Nóaflóðinu, sögurnar af Móses og Abraham og svo framvegis?
a) frásagnir af sögulegum atburðum
b) frásagnir með djúpan siðferðis og/eða trúarlegum boðskap.
c) bæði a og b
d) eitthvað annað
Karl Sigurbjörnsson svarar:
Ég vísa til svars við annarri spurningu um stöðu Biblíunnar. sem að ofan segir um túlkun Biblíunnar og einstakra frásagna hennar.
Opinber stefna þjóðkirkjunnar varðandi þessar tilgreindu frásagnir eru ekki til. Við egum ekki álíta sérhverja frásögn Biblíunnar sem siðgæðislegan mælikvarða.
Gamla testamentið fjallar um verkan Guðs með manninn um guðsskilning mannsins, um sjálfsskilning og heimsmynd og sögu sína. Gamla testamentið er jafn vítt og djúpt og lífið sjálft. Eins og allar góðar bókmenntir fjallar það um lífið, ekki aðeins andlega og guðfræðilegar hliðar þess heldur líka hið hversdagslega, tvíræðni hins gráa hversdagslífs, óhreina og auvirðilega.
Gt sýnir hvernig maðurinn þroskast og lærist að sjá líf sitt og samhengi við lifandi, óskiljanlegan Guð sem á engan máta sýnir einsleitt andlit.
3/4 2005 · Skoðað 3068 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit