Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Er fermingin staðfesting skírnarheitisins?
  2. Er ófermdur maður ekki kristinn?
  3. Afstaða kirkjunnar til dauðarefsinga
  4. Er hægt að afskírast?
  5. Hvað gerir maður í himnaríki?
  6. Er vitað hvar gröf Jesú er?

Glatast óskírð börn?

Hjalti Rúnar spyr:

Ásborgarjátningin 9. grein hljóðar svona:

9. grein: Um skírnina
Um skírnina kenna þeir: Skírnin er nauðsynleg til sáluhjálpar og er náð Guðs veitt í henni. Á að skíra börnin, sem í skírninni eru færð Guði og tekin til náðar hjá Guði.

Þeir fordæma endurskírendur, sem hafna barnaskírn og fullyrða, að börn verði hólpin án skírnar.

Ekki er það rétt skilið hjá mér að samkvæmt þessu eru óskírð börn óhólpin? Hvað þýðir það að vera óhólpin?

Karl Sigurbjörnsson svarar:

Hér verð ég að vísa þér á Kirkjan játar bls. 194-197. Þar kemur kenning þjóðkirkjunnar vel fram hvað þetta varðar. Einar skrifar meðal annars:

Í niðurlagi 9. greinar eru endurskírendur fordæmdir, sem hafna barnaskírn og fullyrða, að börn verði hólpin án skírnar. Í fljótu bragði virðist hægt að álykta sem svo, að þarna sé kennt, að óskírð börn glatist.

Þá ályktun má þó ekki draga af 9. grein. Svo sem fram kemur af 7. og 8. grein gerir Ágsborgarjátning greinarmun á hinni heilögu, almennu kirkju - þ.e. kirkjunni sem trúaratriði - og hinni sýnilegu, ytri stofnun kirkjunnar. Hin heilaga almenna kirkja birtist vissulega í hinni sýnilegu kirkju sem söfnuður heilagra, þar sem fagnaðarerindið er kennt hreint og sakramentunum er veitt rétt þjónusta. Að kenna, hlýða, trúa og neyta eru atriði sem binda kirkjuna. Það er kirkjan, sem er bundin opinberun Guðs. Fyrir hana er hún til orðin. Kirkjan er líka bundin því að miðla opinberun Guðs og með því móti útbreiðist hún.

Ekkert bindur hins vegar Guð eða setur honum skilyrði. Ásama hátt og dómurinn staðnæmist ekki við mörk hinnar sýnilegu kirkju, heldur nær til þeirra innan hennar er 8. greinin nefnir hræsnara og vonda menn, svo staðnæmist frelsunin ekki innan marka kirkjunnar, heldur nær til manna utan hennar. [...]

Gagnvart skírninni hefur lútherska kirkjan því ætíð haldið því fram að hún væri bundin skírninni sem hjálpræðisskilyrði, en Guð væri henni á sama hátt ekki bundinni. Enginn eignast tryggingu fyrir hjálpræði með því að þiggja skírn og enginn má heldur dæma annan fyrir að vera óskírður.

7/4 2005 · Skoðað 3312 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar