Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Er fermingin staðfesting skírnarheitisins?
  2. Afstaða kirkjunnar til dauðarefsinga
  3. Er hægt að afskírast?
  4. Hvað gerir maður í himnaríki?
  5. Er vitað hvar gröf Jesú er?

Er ófermdur maður ekki kristinn?

Fermingarbarn spyr:

Ef að maður lætur ekki ferma sig er maður þá ekki talinn kristinn maður?

Kristján Valur Ingólfsson svarar:

Það getur vel verið að einhverjir séu til sem telja þau ekki kristin sem eru ekki fermd. Fólk ályktar stundum í fljótræði og okkar eigið mat á því hver er kristinn getur verið mismunandi.

Sumum finnst til dæmis að afbrotamaður geti ekki verið kristinn, - eða einhver sá sem hegðar sér með öðrum hætti en sá sem ályktar telur kristilegt. Þetta væri dálítið varasöm grundvallarafstaða til fólks og þessvegna er það viðtekinn regla í kirkjunni að kenna að - kristinn er sérhver sá eða sú sem hefur hlotið skírn.

Það er, skírnin er inntaka einstaklings í hóp kristinna manna, kristna kirkju. Þau sem eru skírð eru helguð Jesú Kristi og merkt honum, og sú athöfn hefur eilíft gildi. Það er þessvegna dálítið villandi þegar oft er sagt að í fermingunni sé maður tekinn í kristinna manna tölu.

Það sem átt er við með því er fyrst og fremst það að kirkjan talar til fólks strax við fermingu sem ábyrgra einstaklinga í kirkjunni.

18/4 2005 · Skoðað 3067 sinnum


Ummæli frá lesendum

  1. Katla Björg Kristjánsdóttir skrifar:
    Ég las hér á síðunni að sá sem er skírður muni maður alltaf vera kristinn, er það satt? Ef svo er er það þá ekki rangt að skíra ungabörn og gera þau kristin án þess að þau viti nokkuð um tilgang athafnarinnar? Er ekki gáfulegra að leyfa barninu að móta sína eigin trú, og ganga síðar í einhvern trúarflokk, ef það finnur einhvern í samræmi við trúna sína? En ef maður gengur í annan trúarflokk hættir maður þá ekki að vera kristinn?
  2. Kristján Valur skrifar:
    Spurningin um það hvort rétt sé að skíra ómálga börn hefur fylgt kristninni alla tíð. Margir draga í efa að rétt sé að skíra börn, og ganga þá út frá því að skírnin hafi ekki gildi nema undan fari persónuleg játning og persónuleg ósk um að taka skírn.

    Þjóðkirkjan tilheyrir þeim hópi kirkna og kirkjudeilda sem játa barnaskírn og iðka hana og hefur fyrir því ákveðin rök. Sjá önnur svör um skírnina.

    Spurningin sem hér lá til grundvallar var um það hvort skírður maður gæti verið kristinn án þess að vera fermdur. Svarið við því er eins og lesa má jákvætt.

    Hér eru til viðbótar bornar fram fjórar nýjar spurningar sem sjálfsagt er að svara, en rétt er að gera það í sérstöku svari.

    Ef ég skil það rétt þá eru þetta spurningarnar: Er það satt að skírður maður sé alltaf kristinn? Er rétt eða rangt að skíra ungabörn? Á ekki að leyfa barni að móta sína eigin trú og leita sér síðan að trúfélagi í samræmi við þá trú? Hættir maður að vera kristinn með því að ganga í annað trúfélag?

    Ef þessum spurningum hefur ekki þegar verið svarað hér á vefnum skal ég gjarna svara þeim í sérstökum pistil.

Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.

Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar