Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvaða reglur gilda um klukknahringingar?
  2. Hverjar eru játningar kirkjunnar?
  3. Hver er í forsvari fyrir kirkjukóra?
  4. Getur maður fermt sig?
  5. Af hverju eru páskarnir ekki alltaf á sama tíma?
  6. Hvenær var Hjallakirkja vígð?

Próf í fermingarfræðslunni?

Áhyggjufull nemandi spyr:

ÉG er 14 ára stelpa og er að fara að ferma mig og ég var að pæla hvort að það sé rétt hjá prestinum mínum að hann megi banna okkur að fermast ef að við gerum þetta og hitt.

Ég er búin að vera mjög dugleg í vetur og læra alltaf heima en stundum hef ég ekki komist í tímana og gleymt að láta vita en prestarnir mínir láta okkur fermingar börnin í próf og ég náði 9,5 í síðasta prófi en þar sem ég mætti ekki í tvo tíma þarf ég að fara í annað próf, og ef að við fáum undir 5,0 þá fáum við ekki að fermast.

Ég vil bara vita hvort að þetta sé bull. ÉG er ein að þeim sem er með mjög mikinn prófkvíða og ég fæ ekki oft hærra en 7,0 á prófum það var bara fyrir heppni hvað ég náði góðum árangri síðast en er þetta rétt að Prestarnir megi banna okkur að fermast ef við gerum ekki eitthver verkefni eða fáum lága einkunn á prófi?

Kveðja,
áhyggjufull nemandi.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:

Til áhyggjufulls nemanda

Prestarnir móta fermingarnámskeið sína og kröfur að mestu leyti sjálf eða sjálfir en eins og með allan undirbúning og nám þá þarf að setja markmið og kröfur fyrir þá sem ætla að taka þátt í undirbúningnum svo að undirbúningurinn skili árangri.

Annars á ég ekki von á öðru eftir frásögu þinni að dæma en þú standir þig og eftir því sem ég þekki þá eru allar leiðir þrautreyndar áður en unglingi er meinað að fermast.

Ræddu við prestana þína um þessar áhyggjur þínar og ég er sannfærð um að hægt er að finna góða lausn á þessu máli.

Irma Sjöfn.

15/3 2005 · Skoðað 2529 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar