Svör sem birt voru í sama mánuði
Ónefndur spyr:
Hversvegna eru kirkjubyggingar svona oft læstar á kvöldin og á sunnudögum eftir Guðþjónustu? Af hverju er hús Guðs svona oft læst? Miða við hvað kirkjan virðist eiga mikla peninga og fær miklar og háar fjárhæðir furðar mig að ekki séu ráðnir húsverðir á sunnudagseftirmiðdögum nema þá í örfáum kirkjum?
Jón Helgi Þórarinsson svarar:
Opnunartími kirkna utan hefðbundins helgihalds hefur víða verið ræddur jafnt meðal presta, í sóknarnefndum og á héraðsfundum bæði í þéttbýli sem dreifbýli.
Flestir virðast sammála um að æskilegt væri að hafa kirkjur opnar virka daga frá morgni til kvölds sem og um helgar utan hefðbundins helgihalds, til að fólk geti leitað þangað í bæn og íhugun þegar það hefur þörf fyrir. Hins vegar hefur verið bent á að þó að kirkjudyr séu ekki opnar er víða í þéttbýli hægt að ganga inn um dyr safnaðarheimila og inn í kirkju.
Nokkrar kirkjur úti á landi eru ætíð opnar en þeim hefur sennilega farið fækkandi undanfarin ár þar sem sóknarnefndir óttast þjófnað.
Spurt er hvort að ekki séu nægir peningar til hjá söfnuðum landsins til að greiða fyrir vörslu kirkna.
Því miður er fjárhagur flestra safnaða erfiður og margir söfnuðir skulda töluvert. Sóknarnefndir sem og prestar eru sammála um að sóknargjöldin séu of lág miðað við þau mörgu verkefni sem þarf að sinna, s.s. byggja og viðhalda húsum og standa undir safnaðarstarfi. Því er líklegt að ráðning húsvarða til að vakta kirkjuhúsin um kvöld og helgar sé ekki næst á verkefnalista sókna, heldur sé frekar horft til þess að greiða niður skuldir og efla starf með börnum, unglingum og ungu fjölskyldufólki svo eitthvað sé nefnt eða auka fræðslu eða þjónustu við þau er minna mega sín.
Í hverjum söfnuði eru sjálfboðaliðar að starfi og víða eru þeir margir. E.t.v. mætti hugsa sér að áhugasöm sóknarbörn skiptu með sér að standa vörð í kirkjunni fáeina tíma í hverri viku svo að hafa mætti hana lengur opna. Slíkt þekki ég að er gert í borgarkirkju einni erlendis, sem ekki hefur ráð á að hafa fólk á launum við það góða starf.
Áhugasamir eru hvattir til að setja sig í samband við sinn sóknarprest eða sóknarnefnd og ræða hvaða leiðir eru færar í þessu máli. Tilvalið er að mæta á aðalsafnaðarfund, kynna sér rekstur safnaðarins og bera fram fyrirspurnir um hvort og þá hernig hægt sé að efla þennan þátt í þjónustu safnaðarins sem spurt er um.
3/3 2005 · Skoðað 2355 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit