Svör sem birt voru í sama mánuði
Guðni Thorarensen spyr:
Hvað kostar að láta skíra?
Ólafur Jóhannsson svarar:
Sæll,
gjald til prests vegna skírnar er kr. 3.500,- ef um sérstaka athöfn er að ræða, hvort heldur í kirkju eða heimahúsi. Ekkert kostar að láta skíra í guðsþjónustu.
Að auki má prestur taka fyrir akstur í slíka athöfn. Miðað er við hámark 12 km í þéttbýli en 30 km í dreifbýli og kílómetragjaldið er núna rúmlega 60 kr. (mig minnir 62 en er ekki alveg viss). Þannig að 4.000 - 5.500 kr. í heildina er eðlileg upphæð, eftir því hvar á landinu er skírt.
Ath. þó að þessar tölur miða við þjónustu innan sóknar; utanaðkomandi prestur gæti tekið meira fyrir ferðina.
Þá er rétt að nefna að í mörgum kirkjum er greitt sérstaklega fyrir kirkjuna eða fyrir þjónustu kirkjuvarðar þegar um sérstaka athöfn er að ræða. Það er líklega í felstum tilvikum 2.000-3.000 kr.
Kær kveðja,
Ólafur
15/3 2005 · Skoðað 3163 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit