Svör sem birt voru í sama mánuði
Arna spyr:
Mig vantar upplýsingar um sögu Dómkirkjunnar í Reykjavík.
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Komdu sæl Arna.
Sr. Þórir Stephensen hefur skrifað sögu Dómkirkjunnar og þar finnur þú líklega þær upplýsingar sem þú leitar að. Rit hans var gefið út af Hinu íslenska bókmenntafélagi og það kom út í tveimur bindum. Fyrra bindið hefur undirtitilinn Byggingarsagan, en það síðara er kallað Í iðu þjóðlífs. Þarna rekur hann sögu Dómkirkjunnar frá 1796-1996. Þú ættir að finna þessar bækur í bókaverslunum og á bókasöfnunum.
Ég vona að þetta gagnist þér.
Kveðja,
Árni Svanur
20/11 2004 · Skoðað 3027 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit