Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Bræður sem skírnarvottar
  2. Að skipta um skírnarvotta
  3. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  4. Hvaða inntökuskilyrði eru í Þjóðkirkjuna?
  5. Aldur skírnarvotta

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvað heitir kapellan hjá Valsheimilinu?
  2. Alfa námskeið í Þjóðkirkjunni

Hvað eru guðfeðgin

Ónefndur spyr:

Hvað eru guðfeðgin?

Kristján Valur Ingólfsson svarar:

Guðfeðgin eru líka kölluð skírnarvottar. Þetta er gamalt orð. Feðgin merkir venjulega faðir og dóttir. Áður fyrr skyldu guðfeðgin vera karl og kona og frá þeim tíma er orðið. Frá þeim tíma er líka orðið guðsifjar, sem táknar hin nýju tengsl einstaklings við barn sem skírnin veitir. Guðfeðgin eru einskonar ábyrgðarmenn þess að barnið skuli alast upp í kristinni trú. Guðsifjarnar treysta böndin til barnsins einnig á þá lund að áður báru guðfeðgin ábyrgð á uppeldi barnsins að öllu leyti ef foreldrarnir féllu frá. Þótt þessi ábyrgð sé nú að mestu gleymd, er sjálfsagt að minna á á hana, þótt sjaldnast reyni nokkru sinni á hana.

Hlutverk guðfeðgina nú er fyrst og fremst að fylgjast með barninu og trúarvexti þess, og vera dugleg að biðja fyrir barninu. Góð er sú venja að guðfeðgin haldi sérstaklega upp á skírnarafmæli barnsins.

Guðfeðgin skulu vera tvö hið minnsta en mest fimm. Eðlilegt er að hvetja til þess að eitt þeirra hið minnsta, sé á líkum aldri og foreldrarnir og geti þessvegna fylgt barninu eftir til fullorðinsára. Sérstaklega er þetta nauðsynlegt í þeim fjölskyldum þar sem venja er að amma og afi séu guðfeðgin, eða skírnarvottar.

Í skírnarathöfninni sjálfri er sjálfsagt að guðfeðgin standi hjá skírnarfontinum meðan skírt er ef því verður komið við. Rétt er að benda á af gefnu tilefni að það er sömuleiðis mjög eðlilegt að eitthvert guðfeðginanna haldi barninu undir skírn. Guðfeðgin þurfa eðlilega sjálf að tilheyra kirkjunni og vera skírð og komin til þroska. Venja er að miða þar við fermingaraldur.

Kristján Valur Ingólfsson

14/9 2004 · Skoðað 4670 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar