Svör sem birt voru í sama mánuði
Inga spyr:
Eru húsvitjanir mikið stundaðar af prestum í Reykjavíkurprófastsdæmi? Væri hugsanlegt að aðrir en vígðir þjónar kirkjunnar gætu sinnt þessu starfi? Ef svo er hvaða undirbúning þyrftu þeir að hafa?
Ragnheiður Sverrisdóttir svarar:
Orðið húsvitjanir er gamalt orð notað um þegar presta fóru heim til fólks til að sinna því á einhvern hátt. Erindin gátu verið margvísleg en þó tengir maður húsvitjun alltaf andlegri umönnun, oft að hitta þann sem er einmana eða aldraður. Prestar stunda enn húsvitjanir og er það oft tengt andláti og útför. Margir prestar þekkja söfnuð sinn vel og koma þvi við hjá sóknarbörnum sínum sem þeir vita að eiga í erfiðleikum. Hins vegar hafa prestar í þéttbýli það mörgum skyldum að gegna að tíminn endist ekki til alls og þá verða húsvitjanir útundan.
Í dag tölum við gjarnan um heimsóknarþjónustu kirkjunnar og hefur ýmislegt verið gert til að efla hana. Má þar nefna útgáfa fræðsluefnis og námskeiðahald. Einnig hefur starfsfólk verið ráðið til safnaða og prófastsdæma til að sinna þessari þjónustu.Þá eru sjálfboðaliðar mikilvægir til að geta sinnt fleirum. Í Reykjavíkurprófastsdæmum er til Ellimálaráð sem heldur utanum starf safnaða sem eru með öldrunarstarf þar með talið heimsóknarþjónustu. Það hefur aðstöðu í Breiðholtskirkju, síminn er 557 1666 og netfangið er ellim@centrum.is.
Þessa þjónustu stunda margir aðrir en vígðir þjónar (þ.e. prestar og djáknar). Starfsfólk safnaða með margs konar menntun og bakgrunn hafa skipulagt heimsóknarþjónustu með því að fá sjálfboðaliða til að taka þátt í heimsóknum. Það er „venjulegt“ fólk sem telst hæft í mannlegum samskiptum sem tekur að sér að heimsækja t.d. 1-2 aðila. Sjálfboðaliðar fá stuðning frá söfnuðinum og hafa eigin samverur þar sem ræða má ýmis mál tengd þjónustunni.
Starfsfólk safnaða er oft fólk sem hefur tekið virkan þátt í safnaðarlífinu. T.d. má nefna kvenfélagskonur. Þannig að það er vel hugsanlegt að koma til starfa í kirkjunni við heimsóknarþjónustu án þess að vera vígður þjónn.
Varðandi menntun hafa margs konar umönnunarstörf reynst góður bakgrunnur, t.d. hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ekki síst djáknamenntun. Fræðsluefni um heimsóknarþjónustu er á netinu.
20/4 2004 · Skoðað 3049 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit