Trúin og lífið
Postillan


Undirsíður

Eftir sama prédikara

Skyldar prédikanir

Kirkjuárið

Prédikanir á trú.is eru birtar undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.



Leita í prédikunum

Guðbjörg Jóhannesdóttir

Þú færð stimpil !

Flutt 24. desember 2010 í Hafnarfjarðarkirkju

Aðfangadagur 2010.

Þau voru örþreytt, búin að vera á ferðalagi að þeim fannst í marga daga, en í raun voru það aðeins ótal klukkustundir.

Það að ferðast með tvö smábörn gerði upplifunina bara sterkari. Það var ekki laust við að henni væri hugsað til Maríu sem hafði þó alla vega verið með barnið í maganum en ekki hágrenjandi í fanginu. Flugvöllurinn var troðinn fólki, sem var þreytt og pirrað eins og þau. Á skjánum komu svo loksins einhverjar fréttir„flight cancelled“. Þau tóku saman dótið sitt, roguðust með dót og gólandi börn út í leit að leigubíl í þeirri von að geta hvílt sig á hóteli smá stund áður en þess væri freistað næsta dag að komast heim.

Fólkið sem einnig var að bíða eftir sama flugi heim til Íslands þusti framhjá þeim og varð allt á undan í leigubílaröðina, hún horfði vonaraugum til tveggja miðaldra kvenna og hugsaði með sér að þær hlytu að sjá aumur á þeim og bjóða þeim sinn bíl því að sá var einmitt með barnabílstólum það sá hún á merkinu. En allt kom fyrir ekki þau voru síðust og síðust skildu þau vera. Þegar loks kom að þeim voru allir bílar með barnabílstólum farnir. Ógnarlöng bið upphófst með örmagna krílin því ekkert rúm var fyrir tillitssemi í andrúmslofti þar sem hver hugsar fyrst og fremst um sig.

Sagan af barnsfæðingunni í Betlehem talar til okkar á þessu kalda kvöldi, segir sögu þess að við þurfum öll á því að halda að okkur sé sýnd umhyggja og tillitssemi, að við þurfum öll á því að halda að fyrir okkur sér rými og rúm. Helst af öllu er hún þó saga um óeigingirni elskunnar. Að elskan knýr til þess að gefa sig alveg, að láta hag þess sem maður ann ganga fyrir sínum eigin hag.

Farvegur elskunnar inn í þennan heim var sá sami og okkar allra. Móðurlíf konu sem fæðir í heiminn elskuna sjálfa. Elska sem gefur sjálfa sig með því að fæðast í litlu barni sem er algerlega uppá umönnun og umhyggju annarra kominn. Fæðist til þess að vera okkur ákall um að sýna hvert öðru elsku. Gæta að hag hvers annars, hvort sem er, pari í leit að gistingu í Betlehem eða á nútímaflugvelli.

Sagan er ákall til okkar um að gangast við því að við erum sköpuð í Guðs mynd til þess að þjóna elskunni og hvert öðru.

Ákallið felur í sér að sagan hafi stefnumarkandi áhrif á líf okkar.

Að sjálf sjónin breytist.

Að næst þegar að þú horfir í spegilinn þá sjáir þú þig með augum Guðs og að næst þegar að þú horfir á okkur hin þá sjáir þú okkur með augum Guðs.

Það mun breyta öllu.

Þetta var venjuleg nótt, ung barnshafandi kona og unnusti hennar á ferðalagi. Þau komust á leiðarenda og fyrsta barnið þeirra fæddist. Helgur atburður í raunverulegum og umfram allt venjulegum aðstæðum. Það er með þeim hætti sem Guð kom í heiminn á jólum og gerir enn. Kemur inní í líf okkar í hversdeginum, á mánudögum sem öðrum dögum.

Mitt í venjubundinni tilveru okkar, kemur Guð.

Vill hafa stefnumarkandi áhrif á það hvernig við sjáum, hvernig við heyrum og hvernig við tölum.
Þetta eru svo sem hefðbundnir dagar sem við lifum.

Nú í kvöld þegar við komum saman til guðsþjónustu ganga karlar og konur um, sum með börn um í leit að húsaskjóli yfir nóttina, í erlendum borgum eru blóðurgir bardagar, fólk liggur enn á sjúkrahúsum, fólk deyr á þessu kvöldi deyr og fólk fæðist í á þessu kvöldi.

Ekki hefur mikið breyst aðeins vegna þess að nú eru jól. En þó hefur allt breyst einmitt núna því við erum áminnt um nálægð Guðs.

Hver er merking skilaboðanna fyrir þig og mig, merking og tilgangur þess að Guð gerðist manneskja ?

,,Ég var að velta því fyrir mér Guðbjörg“ sagði fermingardrengurinn,„þetta með mætingarstimplana fyrir messurnar“. „Já“ sagði ég dálítið annars hugar enda búin að fá þúsund spurningar um þetta sívinsæla efni. „Ég var að spá“ sagði hann„getur maður fengið mætingarstimpil fyrir útvarpsmessur“.

Hann er ekki hér í dag þessi ljúflingur en situr án efa heima við viðtækið þó engan fái hann stimpilinn. Hlustar bara, jafnvel þó hann fái neitt í staðinn.

Það er áskorun okkar allra að hafa löngun til að gera eitthvað án þess að fá nokkuð í staðinn, stimpil, gjafir, fjármuni, athygli.
Áskorun um að gæta að því sem máli skiptir.

Sú löngun er þó líklega einna allra sterkust við þá ótrúlegu upplifun að eignast fyrsta barnið, þá upplifun að langa ekkert fremur en að láta hag þessa litla lífs ganga fyrir.

Merking jóla er einmitt fólgin í því undri, að við erum elskuð án þess að þurfa að gera nokkuð í staðinn. Fáum mætingarstimpil án þess að mæta.

Það hefur mikil áhrif á manneskju að finnast hún elskuð. Því líkt og við vitum þá er eitt að heyra ástarjátningu. Annað er að trúa og treysta því að raunveruleg elska sem sprottin er af engu nema óeigingirni sé að baki ástarjátningunni.
Ást maka, elska fjölskyldu, umhyggja samstarfsfólks,

Mér hefur ávallt fundist merkilegast af öllu í lífinu að upplifa á hvern hátt við getum fyrir styrk elskunnar endurskapað okkur sjálf með því að sjá okkur með augum Guðs.
Það hvernig stefnumót við elskuna breytir öllu.

Við skulum taka með okkur héðan í kvöld merkingu þess að Guð dvelur hér með okkur vegna ástar. Sú ást ætti að breyta öllu. Ekki aðeins því að við sjáum okkur sjálf og og aðra með augum elsku heldur einnig hefur það áhrif á allt það sem við segjum, gerum og hugsum.

Guð kom til okkar í litlu hjálparlausu barni , algerlega uppá ástúð okkar komið. Guð þarfnast okkar og einmitt með því að gera sjálfan sig varnarlausan varð ljóst að við þyrftum að framkvæma til að viðhalda elskunni. Núna hefur hann kallað á okkur kirkjuna sína til að vernda þetta barn, taka undir bænir þess, skýla með lófa okkar, trúfesti og umhyggju ljósi trúar, vonar og kærleika, að það lýsi öðrum til lífsins.

Og Guð er að kalla á okkur að bera áfram óminn af söng englanna svo hann ómi inn í heim fullan óreiðu og sorgar : „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu með mönnunum sem hann hefur velþóknun á“.

Sýnum hvert öðru þann veruleika í tilsvörum, hugsunum og gjörðum.
Förum heim með þeim ásetningi að mæta hvert öðru í kærleika, hvort sem er á heimlinum sem pörum í Betlehem eða á flugvöllum.

Guð gefi okkur öllum gleðileg jól.

Um höfundinn

Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og Þjóðkirkjan. Flettingar 528.


Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar