Trúin og lífið
Postillan


Undirsíður

Eftir sama prédikara

Skyldar prédikanir

Kirkjuárið

Prédikanir á trú.is eru birtar undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.



Leita í prédikunum

Sigurður Árni Þórðarson

Ofurhetja

Flutt 22. mars 2009 í Neskirkju

Í dag er síðasti sunnudagur eftir þrettánda. Nú lýkur eiginlega jólatíð trúartímans og svo hefst níu vikna fastan. Gleðiskeið Guðskomunnar er á enda og föstutíminn fyrir páska hefst. Það er eins í kirkjuárinu og raunveruleikanum - tími gleði og sorgar faðmast í líf okkar allra.

Texti dagsins er um reynslu þriggja manna af ótrúlegum viðburði, en þeim var þó bannað að segja frá því sem þeir höfðu séð – fyrr en löngu seinna. Þeir urðu vitni að einhvers konar ummyndun, metamorfosis, sem allir verða fyrir í einhverju samhengi? En hvað þýddi þessi skekjandi upplifun? Vinir Jesú vissu ekki hvernig þeir áttu að skilja atburðinn eða tjá hann. Svo bannaði meistarinn þeim að tala um málið. Og þannig var það gjarnan í Jesúheimi. Það voru konur, börn og skrítið fólk sem töluðu um hann. En spurningarnar leituðu vissulega á þau öll: Hver var þessi Jesús? Hvernig var hann? Og börn allra alda spyrja: Var Jesús Kristur kannski ofurhetja?

Ofurhetja og þrá í sálardjúpum
Hefur þú einhvern tíma séð ofurhetjukvikmynd? Áttu einhverja DVD-diska með Súperman, Batman eða Spiderman? Talsvert safn er á mínu heimili og í sjónvarpsflakkaranum. Þegar á bjátar í samfélögum fólks þrá menn lausn – af hvaða tagi sem hún er. Í kreppum síðustu áratuga hafa sprottið fram margar ofurhetjur í tímaritum og kvikmyndum. Það er samhengi milli kreppu og viðbragða, stríða og andlegrar leitar. Svo var í seinni heimstyrjöldinni og styrjöldum síðustu áratuga. Súperman er 73 ára ef þú vissir það ekki og Ofurkonan (Wonderwoman) átti sjötugsafmæli í desember síðastliðnum!

Ímyndunaraflið er frjálst og ofurhetjunnar tjá eða túlka óskir um að einhverjir leysi raunverulega vanda fólks og þjóða, einhverjir tryggi öryggi og efli réttinn. Þegar stjórnmálaaðgerðir lánast ekki, fjármálakúnstir takast illa og tæknilausnir reynast fals þarfnast fólk samt lausnar á vanda. Ofurhetjurnar eru gluggi að þessum þörfum og tjá þær. Það er umhugusunarvert, að draumaverksmiðjurnar í Ameríku hafa framleitt ofurhetjumyndir í sérstaklega stórum skömmtum síðasta áratuginn. Af hverju? Jú, spenna í menningu, stjórnmálum, efnahagsmálum, óreiða í samskiptum þjóða og óljós framtíð reynir ekki aðeins á yfirborð og formlegheit, heldur gruggar upp í menningu og líka sálarbotnum og tilfinningum fólks. Því eigum við að staldra við og spyrja um hvað hjálpar og hvernig.

Fyrirmyndir og ofurhetjur
Allar kynslóðir leita sér að hetjum. Kraftasæknir hafa alltaf gert sér ímyndir og Grettir, Gunnar á Hlíðarenda, nú eða Jón Pál eru kraftahvatar. En mennskar kvikmyndastjörnur, körfuboltasnillingar, Leo Messi og Ronaldo eru annars eðlis en Súperman. Leikarar og íþróttamenn njóta ekki yfirnáttúrulega krafta þó góðir séu. Ofurhetjurnar eru ekki venjulegar mennskar verur sem hafa orðið frægar, heldur annarrar gerðar en við menn. Í þeim búa ofurmennskir kraftar, sem eru handan þess sem fólk getur vænst í raunheimi. Hvað þýða Ben Ten, Harry Potter og hið skrautlega hetjugallerí? Við foreldrar erum þrábeðin og grátbeðin um búninga, Batmanskykkjur, Ninjufötu, Súpermanmerki og Spidermangrímu. Það er harður bisniss á bak við þetta allt. Svo setjumst við foreldrar líka niður til að skoða hvort efnið henti börnunum, hvort ofbeldið sé óttavekjandi, hvort máttarvöld hins illa séu úr takti við þroska eða skilningsmöguleika barnanna?

Ummyndun
Og þá komum við til baka á fjall furðunnar, fjall ummyndunar. Hver er munurinn á ofurhetjunni og Jesú Kristi? Eru þetta ekki allt tilbúnar verur úr ævintýraheimum, persónur í fantasíu?
Fyrsta og mikilvægasta aðgreiningin er, að Jesús var og er raunverulegur maður, sem var til og söguheimildir greina frá. En ofurhetjur hafa aldrei verið til.

Í annan stað lagði Jesús ekki áherslu á ofurkrafta sína. Verk hans þjónuðu aðeins fólki í raunverulegum aðstæðum og voru ekki unnin á svig við veruleika þess. Það er því að rugla hlutverkum, að gera mikið úr verkum Jesú - nema í tengslum við raunveruleika og skynsamlega túlkun. Við eigum að taka Biblíuna alvarlega en ekki bókstaflega, skilja inntak, en stoppa ekki bara við ásýnd.

Í þriðja lagi er eðli lífsins og eðli hins trúarlega. Jesús vildi opna veröld fólks og leyfa þeim að sjá líf sitt í stærra samhengi en smáveröld lærisveinanna, styrkja þá í köllun sinni og sjá að Guð væri nærri. Tilgangur Jesú var ekki að draga venjulegt fólk út í blekkingu heimsflótta. Trú felst ekki í að flýja heiminn, heldur taka þátt í lífinu. Guð vill að við séum samverkamenn hans í því að bæta og fegra heiminn. Við erum ekki kölluð til óra og trúarflótta. Því er trú aldrei tengd ofurhetjum.

Ofurhetjur örva ímyndunarafl og þjóna þrá fyrir ævintýri. Við höfum þörf fyrir öryggi, að einhverjir hjálpi okkur þegar við lendum í vanda. Ofuhetjur tjá þrá, en leysa hana ekki. Jesús, hins vegar, er ekki tjáning þrár, heldur sýnir hvernig vandinn er leystur og hvað leið er fær. Ofurhetjur koma ekki fyrir í raunveruleikanum, en það gerir Jesús Kristur hins vegar. Veruleiki hans er veruleiki heimsins, fólks og okkar allra. Ofuhetjurnar tjá óskir í dulvitund, en Jesús er veruleiki lífsins. Hetjurnar eru tákn djúpsins og neyðaróp sálarinnar en Jesús tjáir og er svar lífsins. Það er sú greining, sem er afgerandi og hjálpar okkur við að vera og greina hlutverk rétt.

Sonur minn fimm ára laumaði sér eina nóttina upp í rúm foreldra sinna. Við vöknuðum þennan morgun við að hann tautaði með sjálfum sér: “Ég vildi að pabbi væri ofurhetja.” Mamma hans, sem er snögg til, svaraði honum að bragði: “Hann er ofurhetja.” Þá hló drengurinn og foreldrar hans síðan með honum. Hann skildi, náði alveg þessari kúrsleiðréttingu móðurinnar og svaraði glaður: “Það er alveg rétt, mamma mín.” Og þar með var búið með ofurlitlum húmor og sveiflu að hjálpa honum að setja ofurhetju í samhengi, koma ofurhetjutýpinni fyrir á réttum stað. Pabbi er auðvitað ekki súperman eða spiderman, en þjónar sínu hlutverki samt í raunheimi myrkfælni, óttaefna, skólanáms, glímu við félaga og bróður. Pabbi er mun betri í þeim efnum en nokkur hetja. En ofurhetjan á samt sitt hlutverk djúps og draums, drengurinn á sitt og gegnir ýmsum hlutverkum og er að læra þau. Jesús gegnir enn öðrum og mikilkvægum hlutverkum. Og þann veruleika er drengurinn og raunar við öll stöðugt að tengjast eða glíma við.

Eitt af mikilvægu lífsverkefnum er að iðka lífsgreindina skarplega, læra eigin hlutverk og hvorki smætta né mikla þau hlutverk, sem maður sjálfur og mismunandi hlutar manns gegna. Allt hefur sinn tíma og hlutverkin eru mörg. Inn í það mál spinnast síðan ævintýr, sjálf, heimili, ástvinir og Guð.

Ummyndun Jesú
Hvað gerir þú þá við ummyndunarfjallið? Hvernig túlkar þú það fjall furðunnar í þínu eigin lífi? Þú þarft ekki að taka söguna bókstaflega, heldur máttu taka hana alvarlega. Sagan af ummyndunarfjallinu er m.a. krýningarsaga. Hún á sér hliðstæður í sögum um þegar menn urðu kóngar í hinum forna heimi. Jesús var krýndur og þar með gefið hlutverk. Týpurnar í sögunni eru nokkrar og gegna túlkunarhlutverki og leiðbeina við skilning. Móses kemur þarna við sögu sem fulltrúi laga, boðorða og upphafs sögu hebrea og gyðinga. Jesús tekur við keflinu af Móse og verður því nokkurs konar löggjafi nýs tíma. Svo eru þarna Elía, fulltrúi spádómshefðarinnar, að Guð leiðir fólk og heim áfram. Jesús tekur við því hlutverki líka er því boðberi þess, að Guð mun bæta og lækna.

Lærisveinarnir eru þarna sem fulltrúar okkar manna á öllum öldum. Ummyndunaratburðurinn felst ekki í að ofurhetja verður til og allur vandi er leystur með einhverju djúpsálarlegu afreki eða ofsalegum sigri á myrkri og vonsku.

Ummyndunarfjallið er ekki aðeins tákn um hið einstaka, heldur altæka og venjulega líka. Ummyndunarfjallið er þar sem við erum á hverri stund í lífinu, í siðklemmum okkar, í samskiptum okkar við fólk, í vinnunni, í því æfiverkefni að lifa. Við erum alltaf á þessu fjalli og í námunda við þennan Jesú og við getum snúið málinu algerlega við líka: Hann er alltaf hjá okkur í öllum aðstæðum okkar.

Við höldum áfram alla æfi að vera eins og börn. Við þráum hið góða, óttumst hið versta, upplifum krísur og áföll. Við vonumst líka til á fullorðinsárum og gamals aldri, að einhver ofurhetjan taki okkur upp og reddi okkur. En þannig er lífið ekki. Lífið er ekki leið skyndilausna og yfirborðstækni. Ofurhetjurnar eru fulltrúar djúpsettrar þrár í okkur. Guð tekur vissulega eftir þeim tilfinningum en kemur þó ekki eins og hetja heldur sem barn, vinur, mennsk vera, nágranni og vinnufélagi. Guð kemur í hinu venjulega en ekki aðeins hinu ofsalega. Ummyndunarfjall okkar getur verið í hinu sérstaka en aðllega á heimilum okkar, í vinnu og í samskiptum við ástvini okkar og venjulegt fólk.

Í því samhengi kemur Jesús ekki með látum, heldur í rauntengslum. Ummyndunarsagan er um að Guð er með fólki á lálendi lífsins, í lautum reynslunnar og á hátindum upplifunnar. Guð er alls staðar þegar menn vilja leyfa hinu guðlega að lifa. Þá verður lífið mennskt og þar með guðlegt. Ummyndunarsagan er um krýningu og það er merkilegt mál að Guð tjáir mönnum hvers eðlis veröldin er. En það verður enginn krýndur í þínu lífi, nema þú viljir sjá lífið í slíku samhengi. Þig dreymir ofurhetjur - en hver er hjá þér þegar þú vaknar? Er það ofurhetjan. Nei, það er Guð, einn sem er hjá þér í hversdagsleikanum, í kreppum, á hátíðum og þegar þú þarft á að halda. Guð einn.

Amen.

Neskirkja, 13. febrúar, 2011. Síðasti sunnudagur eftir þrenningarhátíð.

Davíð Þór Jónsson skrifaði merkilega BA-ritgerð sem varðar efni þessarar prédikunar og ristir dýpra og fer lengra en gert er í stólræðu. Ég mæli með bæði ritgerð og höfundi. Slóðin er http://skemman.is/stream/get/1946/2972/9773/1/fa_fixed.pdf

Vegna ofurhetjuíhugnar sýnist mér að gerlegt sé að skoða alla ofuhetjuhefð í menningu vesturlanda sem áhrifasögu Jesú. Margt af einkennum og djúpþáttum ofurhetjuhefðarinnar og ofurhetjanna má rekja til Jesúsögunnar. En mér virðist ekki vera hægt að skýra Jesú út frá ofurhetjum heldur aðeins öfugt.

Um höfundinn

Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og Þjóðkirkjan. Flettingar 233.


Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar