Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
14. desember 2011
Þetta fannst í skó sem settur hafði verið út í glugga heima hjá mér um síðustu helgi.
Kæri X,
Það kom mér ánægjulega á óvart að sjá skóinn þinn úti í glugga, ég hafði haldið að þú værir hættur að trúa á jóla ! Þeir sem trúa á jólasveininn fá í skóinn svo auðvitað vitja ég um þig líka.
Það er hins vegar að sama skapi alger regla að kurteisi og notalegheit við fjölskylduna er það sem verðlauna er virði. Þar sem við jólarnir erum alveg hættir að hafa trú á refsingum eins og kartöflum, ég meina svona í ljósi nýjustu uppeldisvísinda ; ) þá færðu bara bréf núna elskulegur.
Pabbi þinn er nú þegar búin að missa allt hárið og mamman farin að láta lita fyrir löngu !!!!! svo nú reynir á að öll leggi sig fram ; )
Þinn tími er kominn kæri Ketill, þú sem er svo ótrúlega hæfileikaríkur og öflugur ungur maður, þinn tími er kominn í að vera þú sjálfur ! Vera notalegur, elskulegur og kurteis við fólkið þitt sem öll elska þig í tætlur og vita best allra hversu fallegur þú ert að utan sem innan.
Ég geymi það sem átti að fara í skóinn í kvöld þar til á morgun ; ) það kom sér raunar vel, ég var orðinn mjög stirður á öllu þessu brölti enda ekkert grin að vera með staurfætur í mínum bransa !
Kær kveðja
Þinn Stekkjastaur.
Skóinn átti unglingur á heimilinu og var þetta kveðja frá fyrsti sveinninum sem kom til byggða. Mikil umræða hafi átt sér stað á heimilinu um hvernig þetta væri allt saman, hver fengi í skóinn og hver ekki ??
Maðurinn minn ákvað án umhugsunar að skera úr um þetta í eitt skipti fyrir öll !
Þau sem trúa á jólasveininn, fá í skóinn !
Þvílíkur afleikur hefur ekki sést lengi. Nú er ég auðvitað farin að setja skóinn út í gluggann og hef fengið margt skemmtilegt, eins og mandarínur, sleikjó, lottómiða og happaþrennu. Menn þurfa að átta sig á að orð hafa afleiðingar!
Nú bíð ég bara eftir bréfi sem segir að ég sé orðin of gömul.
Ég vildi núna að ég ætti bréfin sem farið hafa í skóinn, í gegnum árin. Þar sem jólasveinninn hefur verið að hrósa og áminna. Heima hjá okkur hefur jólasveinninn nefnilega gengið í gegnum siðbót, eiginlega umbreyst í einskonar engill frekar er hrekkjusvín sem hræðir börn til hlýðni.
Við höfum leyft okkur að endurskapa og umbreyta gamalli hefð sem þó er rík táknum sem eru góð fullorðnum til umhugsunar.
Því má ekki gleyma að jólasveinarnir íslensku gáfu aldrei neitt, og voru ekki í neinum tengslum við kristilegt siðgæði, samfélagsábyrgð eða gjafmildi. Þeir komu til að hrekkja og til að vega að því sem að var undirstaða lífs, skepnunum, fæðunni, lífsafkomunni og svo ekki síst sjálfu jólaljósinu með því að stela kertunum.
Það samfélag sem birtist í þjóðsögum, ljóðum og trúarlífi var veröld harðrar lífsbaráttu. Með það í huga verður að skoða og skilja sögu jólasveinanna. Þeir sóttu að undirstöðum. Jólasveinarnir eru því ímynd lífsbaráttu og glímu við að láta ekki myrkrið ná völdum. Sagan um þá var áminning um, að huga þyrfti vel að dýrum, passa þyrfti matinn og alla umgjörð mannlífs. Allir skyldu leggjast á eitt að tryggja að myrkrið næði ekki yfirhöndinni. Ljósið skyldi fá að koma í heiminn.
Aðstæður hafa breyst. Húsakynnin eru betri en áður og atvinnulífið er með ólíku sniði.
En er það svo víst að heimurinn sé svo breyttur, að aðeins platjólasveinar með bómullarhýjung á vélsleðum fari um? Hvernig stjórna þeir, sem eiga fyrir fólki og fjármunum að sjá? Eru engir jólasveinar á ferð? Er jólaundirbúningur þinn algerlega snurðulaus. Er engin streita í samlífi fjölskyldunnar þinnar? Er enginn, sem reynir að narra þig og plata á þessum sölutíma? Staldraðu við og reyndu að gera þér grein fyrir hvað það er sem hrellir. Hverjir eru jólasveinarnir? En spurðu þig líka þeirrar spurningar, hvort jólasveinn sé jafnvel innan í þér!?
Sagan af jólasveinunum er merkileg spekisaga sem í raun er ótrúlega raunsæ.
En líkt og Stekkjastaur bendir á í bréfi sínu er úrelt að hræða börn til hlýðni, það þarf frekar að elska þau til ábyrgðar.
Það að setjast niður og skrifa bréf fyrir jólasveininn var verkefni til að siðbæta sveinana og ekki síður gefur tækifæri til að senda jafnvel strákaslánum elskubréf.
Þannig talar Guð til okkar í Biblíunni, í sköpuninni, í manneskjunum í umhverfi okkar. Segir þér með goðsögum, ljóðum og dæmisögum að þú ert elskuð og elskaður. Segir þér hvers virði þú ert og allar manneskjur. Segir þér að þú getir gert það sem hugur þinn stendur til, að lifa í trú, von og kærleika.
Jafnvel þó þú hafir misstigið þig þá segir hann þér að þú getir bætt fyrir og gert betur næst.
Án þess að við höfum sett skóinn út í glugga hefur okkur verið sent bréf elskunnar.
Þessi árstími er ákall um að gefa því gaum.
Lesnir eru aldnir textar þar sem Guð talar til barnanna sinna.
Segir þeim að missa ekki vonina því hann sé að koma.
Guð er að tala til þín.
Ég veit ekki hvernig það er hjá þér hvort að þú setur skóinn út í gluggann eða ekki.
En ég bið þig um að setja hjartað út í glugga og opna það því hann er að vitja þín einmitt núna.
Það sem er gott er að þú þarft ekkert annað til en að vera þú.
Bara vona og hann er með þér.
Verkefnið er að finna ávallt leið til að næra vonina í öllum aðstæðum.
Næra vonina til að geta tekist á við það sem ekki er á okkar valdi, geta nært von jafnvel þegar að einhvern vantar við matarborðið á aðfangadagskvöld og jafnvel þó margt sé einhvernveginn alls ekki eins og það á að vera.
Heima hjá mér ákváðum við eins og ég lýsti að nýta okkur jólasveinana til góðra verka og sýna með því að öll getum við verið góð meira að segja skeggjaðir karlar af fjöllum sem um aldir hafa sótt að fólki. Svo nú skrifa þeir elskubréf vestur í bæ í stað þess að hrekkja, meiða og stela.
Strákrassinn fékk tækifæri sem hann nýtti vel. Alla vega þar til næst !
Hvað með þig, hvernig vilt þú nýta tækifæri aðventunnar til breytinga.
Þarft þú kannski að skirfa einhverjum ástarbréf, jafnvel bara sama gamla karlinum eða kerlingunni sem að þú hefur vaknað við hliðina á í mörg ár. Hvað með börnin þín eða barnabörnin, vinina og vinkonur.
Hvað með þig sjálfa eða þig sjálfan.
Þarftu kannski að lesa elskuorðin sem þér eru ætluð þessa aðventuna.
Hann er að koma til þín !
p.s. jólasveinapælingar voru góðfúslega fengnar að láni frá dr. Sigurði Árna Þórðarsyni, vini mínum.
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 620.