Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
9. nóvember 2011
Í Aþenu þeir áttu
sér ofur vitran mann.
Þar Sókrates hann sagði
þeim sáran sannleikann.
Með lygi og beisku eitri
Þeir líflétu hann.
Í Ísrael þeir áttu
svo undur góðan mann.
Hann kom á meðal fólksins
og kenndi’ um kærleikann,
en kallað var af lýðnum:
Já, krossfestið hann!
Í fjölmiðlum þeir vilja
nú finna nýjan mann,
sem á sínu sviði
sitt hvað gagnlegt kann,
í beinni útsendingu
svo ærusvipta hann.
Og þannig sama sagan
síendurtekin er.
Meiri hasar heimtar
múgsins æsti her.
Kannski kemur röðin
kæri minn að þér
– og mér.
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 736.