Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
26. mars 2010

Þau eru hryggileg dæmin um það sem þrífst í skúmaskotum mannlegs samfélags. Við heyrum frásögur af milljónum kvenna, karla og barna sem eru í ánauð og dvelja þar í skugga vondra verka okkar mannanna. Andleg leti okkar dregur gjarnan úr okkur kjarkinn að horfast í augu við ógnvænlegar staðreyndir og afleiðingar græðgi og ofbeldis.
Munum að þau líða ekki aðeins undan ofbeldi og misbeitingu heldur líka andvaraleysi okkar. Saga „Svetlönu“ er ein af þessum sögum. Hún er frá Uzbekistan og var henni boðin atvinna í Dubai. Í stað þess að komast þangað var skilríkjum hennar stolið og í kjölfarið var henni þvælt á milli glæpagengja og endaði hún nauðug í vændi.
Á vegum Alkirkjuráðsins er yfirstandandi áratugur gegn ofbeldi -2001-2010. Í tengslum við þetta áratugsátak þá er nú á föstunni sérstakt 40 daga átak gegn ofbeldi á konum. Eitt af þessum birtingarformum er mansal, nútíma þrælahald. Talið er að konur í þriðja heiminum eiga hvað mest á hættu að verða fórnarlömb mansals.
Fátækt, skortur á tækifærum og hefðir og menning í þróunarlöndum skapa aðstæður varnarleysis fyrir þessar konur og því á mansal greiðan aðgang í samfélagi þeirra. Ástæða er til að undirstrika hversu ógnvænlegt mansal er og nýlega höfum við verið minnt á þetta hér á Íslandi með dómi í mansalsmáli. Það er því fyllilega við hæfi að benda á eftirfarandi staðreyndir um mansal sem birtar eru á vef átaksins.
Staðreyndir um mansal
Eins og áður sagði þá er mansal nútíma þrælahald og áhrifa þessa gætir um allan heim. Það er mjög erfitt að staðfesta tölur sem tengjast mansali og engar nákvæmar tölur eru til yfir fjölda fórnarlamba. Líklega er mansal töluvert útbreiddara en tölur gefa til kynna.
Byggt á heimildum: US Department of Justice, US State Department, Salvation Army Canada, UNIFEM, Central Asia-Caucasus Institute.
Allt eru þetta tölulegar staðreyndir en á bak við hverja tölu er manneskja sem þjáist. Sú manneskja er einhvers sonur eða dóttir, móðir eða faðir, Minnumst þeirra í bænum okkar , orðum okkar,ræðu okkar. Höldum umræðunni vakandi í ljósi orða Krists í 25. Kafla Matteusarguðspjalls: „Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“..já og líka „Allt sem þér gerðuð ekki einum minna minnstu bræðra, það hafið þér ekki heldur gert mér.“
Höldum vöku okkar.
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 963.
27. 3. 2010 kl. 18.26
Bestu þakkir fyrir flottan pistil og mjög þarfa brýningu. Auðvitað segja tölur aðeins hluta af sögunni en þær eru sláandi og virkilega þess virði að halda þeim á lofti. Er ekki kominn tími til að við rönkum við okkur??? Þá er líka tími til kominn að við sjáum mansalið í stærra samhengi og förum að taka á málum sem tengjast klámvæðingunni almennt hvar sem hún birtst okkur (sbr. umræðuna í HÍ í vikunni - sjá student.is).
27. 3. 2010 kl. 21.38
Takk Irma, þarfur og tímabær pistill um málefni sem varðar okkur öll.