Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
9. október 2009

Tilkynnt var í dag að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hlyti friðarverðlaun Nóbels í ár. Eins og búast mátti við hefur tilnefningin vakið mikla athygli og ólík viðbrögð.
Þrátt fyrir skamman tíma sem forseti hefur Obama tekist að ná athygli heimsbyggðarinnar og að vekja von með fólki um betri framtíð. Í tilkynningu norsku Nóbelnefndarinnar segir að Obama hljóti verðlaunin fyrir að stuðla að samvinnu og samtali meðal manna og þjóða. Útrýming kjarnavopna og áherslan á hnattræna hlýnun eru í tillögunni tínd til sem helstu málefnin sem Obama forseti hefur beitt sér fyrir á sínum stutta tíma á valdastóli. Sjá má tilkynningu norsku Nóbelnefndarinnar í fullri lengd hér: http://nobelpeaceprize.org/en_GB/home/announce-2009/
Frá kirkjulegu sjónarhorni er margt áhugavert við það hvernig Barack Obama hefur beitt sér. Kjarnavopnalaus heimur og hnattræn hlýnun eru mikilvæg málefni sem hafa verið á borði kirkna og kirknasamtaka um langa hríð. Og þótt það sé ekki nefnt í tilkynningu Nóbelnefndarinnar, hefur Obama forseti einnig látið að sér kveða á sviði samskipta ólíkra kynþátta og trúarbragða. Ekki síst hefur hann vakið athygli fyrir að vera ómyrkur í máli þegar hann talar um tengsl kristinna og múslima.
Fræg er ræða sem Obama hélt í háskólanum í Kaíró í Egyptalandi í júní síðastliðnum, þar sem hann kallaði eftir nýju upphafi I samskiptum kristna heimsins og hins múslimska. Obama sagði um ræðuna að hann vildi með henni “segja sannleikann” um tengsl Islam og Bandaríkjanna. Hann hvatti bæði vesturlandabúa og múslima um allan heim að hætta að hugsa í staðalímyndum um þessa hópa og horfa ekki á það sem sundarar okkur sem mannkyni heldur á það sem sameinar okkur.
Til að styðja þessa sýn endaði Obama ræðuna sína í Karíó á því að vitna í trúarrit kristinna manna, gyðinga og múslima; Biblíuna, Talmúd og Kóraninn. Þar sagði Obama:
Við höfum í hendi okkar að skapa þá veröld sem okkur finnst eftirsóknarverð, en aðeins ef við höfum hugrekki til að hefja nýtt upphaf og hafa í huga það sem skrifað stendur.
Í hinni helgu bók, Kóraninum segir: “Ó, þú mannkyn! Við sköpuðum ykkur karla og konur; og við höfum skapað ykkur eftir ólíkum þjóðum og ættflokkum, til þess að þið megið þekkja hvert annað.”
Talmúd segir okkur: “Allt lögmálið bendir okkur á friðarveg.”
Í heilagri ritningu segir: “Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.”
Mannkyn allt getur lifað saman í friði. Við vitum að það er samkvæmt vilja Guðs. Og það er það sem við verðum að vinna að hér á jörðinni.
Þessi ræða hlaut vitaskuld misjafnar móttökur. Fulltrúi Ísraelstjórnar sagði að Obama væri ekki í tengslum við veruleikann og frá Hamas samtökunum kom tónn um að hér væri bara diplómatískt smjaður á ferðinni.
Þrátt fyrir tortryggni af þessu tagi, hlýtur það að vekja von um breyttar áherslur í heimspólitík og samskiptum fólks að sjá sameiginlegum friðarboðskap hinna ólíku trúarbragða vera lyft fram með þessum hætti.
Útnefning Barack Obama til friðarverðlauna Nóbels í ár er kannski fyrst og fremst pólitískur leikur til að setja pressu á Bandaríkjastjórn að endurhugsa hernaðaríhlutanir sínar í miðausturlöndum. En hún er líka tjáning um þá ósk að sá valdamikli aðili sem situr á forsetastóli í Bandaríkjunum verði í fararbroddi í nýju upphafi þar sem fólk með ólíkan trúarlegan og menningarlegan bakgrunn vinnur saman að friði á jörð.
Ljósmynd með pistlinum:
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 1065.
9. 10. 2009 kl. 16.20
Takk fyrir þennan góða pistil. Mér finnst þú orða þetta vel og ég er sammála þér varðandi vonar-víddina í útnefningunni. Mér finnst verið að horfa til framtíðar og velja út frá væntingum og um leið setja ákveðna pressu á Obama og Bandaríkjastjórn sem er nýstárlegt og kannski svolítið snjallt.
Lútherska heimssambandið sendi frá sér fréttatilkynningu um þetta mál í dag og þar segir meðal annars:
9. 10. 2009 kl. 17.12
Í Afghanistan er allt með líkamshitastig skotið niður, og nú er verið að fjölga bna-smástrákum með byssur þar.
9. 10. 2009 kl. 18.24
Takk fyrir góðan pistil. Ég held að þú hittir naglann á höfuðið með því að þessi óvænta tilnefning sé einmitt til hinnar nýju orðræðu vonar, sátta og friðar. Tilnefning vonarinnar.
10. 10. 2009 kl. 11.01
Takk fyrir þessi viðbrögð.
Það er áhugavert hvernig Obama uslar á sviðum eins og sambúð trúarbragða, ólíkra kynþátta og velferðarmála. Þessi vonartilnefning er vonandi varða á þeirri leið, þrátt fyrir hatrömm viðbrögð afla sem vilja viðhalda aðgreiningu og ríkjandi misskiptinu.
Go Obama!