2633
Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
19. nóvember 2008
Að vakna í myrkri og sofna í myrkri tilheyrir þessari tíð. Jafn mikið og ég kann að meta birtuna þá er myrkrið ekki síður áhugavert. En oft er þó eitthvað við myrkrið sem að vekur kvíða. Óttinn við hið óþekkta sem í myrkrinu býr. Það viljum við flest forðast hvað sem það kostar, hafa fremur allt fyrirsjánalegt og getað stjórnað öllum hlutum. Svolítið eins og börn sem þjást af myrkfælni. Það er áhugavert að skoða gjafir myrkursins og stundum þurfum við einfaldlega að leyfa okkur að hvíla í myrkrinu án þess að flýja samstundis inní ljósið á ný. Finna að í myrkrinu er hvíld að finna, þar er staður endurnýjunar, staður til að hlaða rafhlöðurnar áður en við höldum út í heiminn á ný. Í myrkrinu er staður íhugunar svigrúm til endurmats og andsvars.
Gjöf myrkursins er íhugun, endurskoðun, að gefa gaum að því sem bærist innra með. Líkt og náttúran undirbýr sig undir að springa út á ný getum við einnig undirbúið okkur fyrir nýtt upphaf. Myrkrið er jafnvel forsenda nýs upphafs. Líkt og fóstur sem í myrkri móðurlifsins hefur nægt rými, nægan tíma til að þroskast og vaxa, meðan það undirbýr sig fyrir lífið. Tími myrkursins getur verið frjór, getur borðið ávöxt, getur verið skapandi andartak í tilveru okkar. Tækifæri til að næra kyrrð og ró.
Önnur gjöf myrkursins er að sjá það sem áður var augum hulið. Þegar augun venjast dimmunni sjáum við eitt og annað nýtt. Kanski eitthvað sem vekur réttlætiskend okkar og gildismat. Sjáum lífsmáta okkar eða samskipti við annað fólk. Í myrkrinu höfum við möguleika á hvíld og möguleika til að sjá hvað þar leynist ef við hrekjum ekki allt myrkur á brott með ljósadýrð. Öll þurfum við að finna leiðir til að lifa með og í myrkri án þess að láta það buga okkur.
Þriðja gjöf myrkursins er gjöf andsvarsins. Gjöf þess að geta brugðist við endurmati og nýrri sýn. Gjöf breytinga þess sem aflaga hefur farið í lífi okkar. Sjá hvert annað, samfélagið, okkur sjálf í réttu ljósi. Tími til að huga að þeim sem í kringum okkur eru, í fjölskyldum okkar, í samfélagi okkar og í heiminum öllum. Þakklæti og gjafmildi eru gagnlegar leiðir andsvars og hvert okkar hefur tækifæri til að finna þann farveg sem hentar.
Aðventan er tími til alls þessa.
Tími myrkursins, hvort sem að myrkrið er í huga vegna áfalla, lífsmáta eða í heimi vegna tíðarinnar, þá hjómar á þessu ári sem öðrum fyrirheitið sem sungið er á aðfangadag og rætist senn. „Sú þjóð er í myrkri gengur sér mikið ljós og þeim er búa í náttmyrkranna landi ljómar fögur birta”.
Ég óska ykkur íhugunar, endurmats og andsvars á aðventunni og ljóss og friðar á jólum.
65eAllur réttur áskilinn © 2000-2013 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 2113.