Trúin og lífið
Pistlar


Undirsíður

Eftir sama höfund

Skyldir pistlar

Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.



Leita í pistlum

Ásta Rut Ingimundardóttir og Fríða Björk Skúladóttir og Bjarnheiður Böðvarsdóttir

Kvöldmaturinn strauk

22. janúar 2007

Þá erum vid að hefja síðasta mánuðinn í vinnunni okkar hér í Malaví. Við trúum varla hversu hratt tíminn hefur liðið og erum varla tilbúnar ad halda heim á leið eftir 4 vikur. Vid fengum til okkar gesti um áramótin og theim fannst vid hafa aðlagast hlutunum hérna aðeins of vel þar sem við gerum ekki kröfu um annað en rennandi vatn a hótelherbergjum og helst að maturinn sé heitur á veitingastöðum.

FundaraðstaðaEn eftir að hafa verið hérna í rúma fjóra mánuði er samt ýmislegt sem við venjumst seint. Vid fáum t.d. stundum gefins lifandi kjúkling sem þakklætisvott fyrir að sinna skjólstæðingum okkar. Þar sem við erum ekki vanar öðru en að kaupa kjúkling tilbúinn til að matreiða hann finnst okkur það alltaf jafn fyndið þegar þessum greyjum var troðið undir sætið hjá okkur og tekin með heim.

Einn daginn þegar vid ætluðum ad elda kjukling (við fáum aðstoð við það) kom nágrannakonan okkar og sagði að það væri lítilsháttar vandamál með kvöldmatinn. Kjuklingurinn hafði nefnilega stungið af yfir í næsta þorp og engin leið að ná honum. Hún sagði að við yrðum bara að elda hann þegar hann kæmi aftur einhvern tímann á næstu dögum.

Það er ekki alveg það sem maður á að venjast að kvöldmaturinn stingi af. Hann skiladi sér síðan næsta dag og vid fengum kvöldmat. Við borðum líka oft í þorpunum þar sem við sinnum skjólstæðingunum. Þar sem Malavar borða með höndunum fylgir alltaf fata með vatni til að þvo hendur fyrir og eftir mat. Einn daginn var vatnið óvenju brúnt á litinn.

Við litum hver á aðra og fórum að hugsa hvort maísmjölið hefði verið soðið í svona skítugu vatni. Bílstjórinn okkar tók eftir svipnum á okkur og sagði að það væri ekkert að óttast þetta væri alveg hreint vatn þad kæmi bara svolítil mold í það þegar fatan væri dregin upp úr brunninum. Hér er hreint vatn nefnilega ekki það sama og tært vatn. Við létum okkur nú samt hafa það og borðuðum matinn sem virtist eldaður uppúr drullupolli.

Fríða Björk Skúladóttir
Ásta Rut Ingimundardóttir
Bjarnheiður Böðvarsdóttir



2 viðbrögð við “Kvöldmaturinn strauk”

  1. Toshiki Toma skrifar:

    Skemmtileg og áhugaverð saga er þetta. Takk fyrir.
    En mig langar til aðeins að vita betur hverjir eru höfundir, hvað gera þær hvar eru þær.
    Fyrirgefðu mér en ég er að fylgjast ekki öllu sem gerist í heiminum…

    Bestu kveðjur

  2. Árni Svanur Daníelsson skrifar:

    Höfundarnir eru hjúkrunarfræðingar sem starfa á hjúkrunarvakt í Malawí á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Nánar er hægt að fræðast um verkefnið á vef Hjálparstarfsins.

Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 1821.


Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar