Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
16. október 2006
Eftir 2ja sólarhringa ferðalag komum við að lokum til Lilongwe, höfuðborgar Malawi. Til að halda kostnaði við ferðina sem lægstum flugum við eftir talsverðum krókaleiðum og tókum 5 flug. Við lentum því þreyttar en fullar eftirvæntingu hér í Malawi 13. september. Við höfum síðan fengið ágætis aðlögunartíma hérna til að kynnast landi og þjóð og aðlagast nýrri menningu. Hér er ýmislegt öðruvísi en við eigum að venjast. Við búum í þorpi sem heitir Madisi og er í Dowa héraði norður af höfuðborginni. Dowa er fátækasta héraðið í Malawi og sá hluti þess sem við búum í er einn sá fátækasti. Við búum í einbýlishúsi með þrjú svefnherbergi og höfum rafmagn en hins vegar erum við ekki með rennandi vatn. Við þurfum að fá vatn úr brunni hér stutt frá og það er síðan geymt í síldartunnu á eldhúsgólfinu hjá okkur. Þetta gerir það að verkum að við þurfum að sjóða vatn til allra nota t.d. uppvask, þvott, bað o.fl.. Þar sem við erum ekki með vatn erum við að sjálfsögðu ekki með hefbundið klósett, heldur erum við með kamar fyrir aftan hús sem er bara djúp hola.„Sturtan” okkar er einnig í kofa og er í raun aðeins bali með soðnu vatni sem við ausum yfir okkur úr. Hér verður einnig oft rafmagnslaust, símasamband er stopult og engar nettengingar. Næst okkur búa flestir í leirkofum með stráþaki, fæstir hafa rafmagn og engir rennandi vatn. Íbúarnir virðast vera sáttir við sitt þó okkur finnist þá skorta margt.
Við höfum nú hafið störf á heilsugæslu sem rekin er af lúthersku kirkjunni og á henni starfar aðeins einn hjúkrunarfræðingur. Í Malawi er mikill skortur á fagfólki og hefur ekki fengist læknir eða fleiri hjúkrunarfræðingar til starfa á heilsugæsluna eins og er. Okkar starf er því að aðstoða hjúkrunarfræðinginn og afgreiða lyfin. Út frá heilsugæslunni er einnig rekin Mobile Clinic sem er nokkurs konar heilsugæsla á hjólum og sinnir fátækum og munaðarlausum börnum um allt land. Við komum einnig til með að fara í þess konar ferðir sem eru tvær til þrjár vikur í senn. Við tökum einnig þátt í verkefni sem kallast„Home Based Care” sem er stuðningur við fólk í þorpunum hérna í kring. Þorpin sem verkefnið styður eru 170 talsins og það felst í því að hjálpa fólki að tryggja afkomu sína. Íbúarnir hafa val um að taka þátt í verkefnunum og tekur um það bil helmingur þeirra þátt. Í byrjun fær þorpið gefins t.d. 7 geitur sem þeir eru ábyrgir fyrir og þegar geiturnar hafa náð ákveðnum fjölda er þeim skipt á milli þátttakendanna og þeir sjá þá um sína hjörð. Sami háttur er hafður á með ræktun svína, fugla, býflugna og fiska. Einnig fá þeir gefins fræ til að rækta grænmeti og tré. Grafnir hafa verið brunnar sem eru lokaðir svo húsdýr komist ekki í neysluvatn. Einnig er verið að leggja vatnsdælur til að vökva akrana til að tryggja uppskeru allt árið. Þorpin fá að velja hvað af þessum verkefnum þau vilja taka þátt í og eru þau komin mislangt á veg með verkefnin. Home Based Care rekur einnig dagheimili fyrir munaðarlaus börn sem misst hafa foreldra sína úr eyðni. Dagheimilin eru opin tvo daga í viku þar sem börnin koma á morgnana og fylgja ákveðinni dagskrá sem felst í fræðslu og stuðningi hvort við annað. Þar sem að næringarástand barnanna er slæmt fá þau næringarríkan maísgraut að borða, sem bætt hefur ástand þeirra. Dagheimilin styðja einnig við eldri börn sem fara í skóla með því að aðstoða við kaup á skólabúningum og ritföngum. Við höfum heimsótt nokkur þessara dagheimila þar sem börnin hafa sungið og dansað fyrir okkur í rifnum og skítugum fötum. Þau virðast hamingjusöm þrátt fyrir stöðu sína. Barnaheimilin eru rekin í moldarkofum og skortir nánast allt nema glöð börn. Þar eru engir stólar, borð eða leikföng. Börnin koma meira að segja með sína eigin diska að heiman til að borða grautinn í hádeginu.
Þegar við höfum heimsótt þorpin hafa íbúarnir alls staðar tekið vel á móti okkur. Þeir hópast í kringum okkur; syngja, dansa og gefa okkur Coke og Fanta í gleri til að sýna þakklæti sitt. Það er þessu fólki mikil hvatning að fá hvítt fólk í heimsókn til að sýna þeim afrakstur erfiðisins og hvernig stuðningurinn hefur nýst þeim. Okkur líst vel á þau verkefni sem við höfum séð og hlökkum til að takast á við þau.
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 1728.