Trúin og lífið
Pistlar


Undirsíður

Skyldir pistlar



Leita í pistlum

Dagný Halla Tómasdóttir

Börnin og góðu verkin

20. desember 2005

Aðventan er yndislegur tími. Sérstaklega fyrir börnin. Allir keppast við að finna sér allt mögulegt og ómögulegt að gera til að undirbúa jólin. Það eru óteljandi hlutir í boði og verður sá þáttur sem snýr að því að njóta og neyta fyrirferðameiri með hverju árinu.

Listinn yfir nauðsynlega hluti sem þarf að framkvæma fyrir jólin lengist sífellt. Það eru jólatónleikar, piparkökubakstur, laufabrauð, fara í Blómaval og skoða jólasveinana og svona mætti lengi telja. Vissulega er óhætt að taka undir það að okkur hættir til að gera undirbúning jólanna nokkuð yfirdrifin en það má ekki gleyma því að það eru stórkostleg forréttindi að fá að taka þátt í því að njóta og neyta.

Til hvers aðventan er ætluð

Um leið og við kennum börnunum okkar að njóta alls þess góða sem er í boði skiptir mestu máli að leyfa þeim að upplifa og læra til hvers aðventan eru ætluð. Aðventan er til að búa okkur undir komu jólanna, fæðingarhátíð frelsarans. Kristnu fólki ber að hugsa um náungan, ekki bara á aðventunni en neyð náungans verður meira áberandi á þessum tíma árs.

Umhyggja fyrir náunganum er partur af því að undirbúa okkur hið innra fyrir komu Jesú Krists. Og við fullorðna fólkið eigum að vera fyrirmynd æskunnar í því hvernig við nálgumst það verkefni. Það er gott að setjast niður með börnunum og unglingunum og tala við þau um boðskap jólanna og verður mikilvægi þess aldrei ofmetið. En það er ekki síður mikilvægt að láta verkin tala.

Margir foreldrar velta því fyrir sér hvernig hægt er að hjálpa börnunum sínum að íhuga boðskap jólanna og fá þau til að veita athygli hinum sanna jólaboðskap um leið og þau fái að njóta þeirrar gæfu að búa í svona góðu og gjöfulu samfélagi.

Góðverkadagatal

Eitt af því sem er til meira en nóg af hjá okkur hér á Fróni eru jóladagatölin. Það er mjög spennandi að fá jóladagatal sjónvarpsins, Íslandsbanki gleður litla viðskiptavini sína með forláta súkkulaðidagatölum. Á mínu heimili er til jóladagatal sem húsmóðir heimilisins saumaði út á Myndarlega Tímabilinu og hefur það hingað til verið hlaðið sælgæti.
Fyrir þessi jólin fékk útsaumaða dagatalið nýtt hlutverk.

Dagatalið er orðið að góðverkadagatali!

Í stað þess að vera yfirfyllt af sælgæti var það skreytt með miðum sem á er skrifað eitt góðverk fyrir hvern dag sem dagatalseigendurnir eiga að framkvæma samdægurs. Góðverkin geta verið til dæmis að inna af hendi eitthvert heimilisverk, hringja í afa eða hjálpa frænku, gefa fuglunum eða setja pening í Hjálparstarfsbaukinn. Þessi litla tilraun hefur orðið öllum til gleði sem hlut eiga að máli til gleði og er góðverkadagatalið vinsælasta dagatalið á heimilinu.

Mesti spenningurinn er að opna miðann og sjá hvaða góðverk bíður. Þegar góðverkin eru framkvæmd gefst svo oft gott tækifæri til að spjalla um það hvað það er mikilvægt fyrir okkur sjálf að geta gefið af okkur og gefið með okkur eins og hann boðaði okkur að gera, sá sem lagður var í jötu í fjárhúsi fyrir löngu síðan og hefur enn áhrif á líf okkar allra.

Um höfundinn



6 viðbrögð við “Börnin og góðu verkin”

  1. Árni Svanur skrifar:

    Mér finnst þetta frábær hugmynd hjá ykkur - mikið væri gaman að reyna að breiða hana út á næstu aðventu. Gæti ÆSKR ekki gefið út svona dagatal, t.d. í samvinnu við Hjálparstarf kirkjunnar. Þetta gæti jafnvel kallast skemmtilega á við áherslurnar í stefnumótuninni.

  2. Irma Sjöfn skrifar:

    Takk fyrir góðan og vekjandi pistil

    Þetta er frábær hugmynd með góðverkadagatalið!

  3. Hans Guðberg skrifar:

    Snilldarhugmynd Dæja og virkar án efa mjög vel. Eins og Árni Svanur bendir á þá má útfæra þetta á ýmsan máta. Okkar verkefni fyrir jól 2006.

  4. Guðbjörg Jóhannesdóttir skrifar:

    Tær snilld, þetta verður kynnt á Króknum á næstu aðventu. Takk fyrir þetta ; )

  5. Irma Sjöfn skrifar:

    Svo væri nú gott að benda jólasveinunum á þetta þegar allt skótauið er komið út í gluggana …

  6. Adda Steina skrifar:

    Dæja, þetta er alveg frábær hugmynd og ég get ekki beðið eftir næstu aðventu til að prófa þetta hér. Mínir drengir enda eldri og dagatölin með myndunum aðeins farin að tapa glansi.

Allur réttur áskilinn © 2000-2010 Þjóðkirkjan. Flettingar 2214.


Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar