Trúin og lífið
Pistlar


Undirsíður

Skyldir pistlar

Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.



Leita í pistlum

Jónas Þ. Þórisson

Neyðin kallar í Pakistan

1. nóvember 2005

Nú er ljóst að jarðskjálftinn sem skók norðaustur Pakistan og Kasmír hérað á Indlandi hefur valdið miklu meiri skaða en fyrst var ætlað. Hjálparstarf á svæðinu er að verða eitt það erfiðasta sem hjálparstofnanir hafa staði frammi fyrir. Jarðskjálftasvæðið er mjög víðáttumikið og að hluta til erfitt yfirferðar. Ástandið hefur versnað mjög síðust daga vegna óveðurs og kulda. Tala látinna er nú komin í 80 þúsund manns og hækkar stöðugt. 3 - 4 milljónir manna hafa misst heimili sín og búa nú við illan kost þar sem vetrarkuldar sækja að á hálendi og í fjalladölum.

10.000 börn í hættu

Í fjallahéruðum eru samgöngur oft mjög erfiðar eða jafnvel ómögulegar nema með þyrlum. Enn hefur ekki tekist að ná til 120 þúsund barna. Talið er að yfir 10 þúsund þessara barna séu í bráðri hættu og kalla hjálparstofnanir eftir aðstoð við þau nú þegar.

Í síðastliðinni viku hættu flestar leitarsveitir að leita í rústunum og hurfu á braut. Þúsundir líka leynast enn í rústunum og sum þorp hafa einfaldlega verið gerð að grafreitum. Má þar til dæmis nefna þorpin Garan Dheri og Garlaat þar sem allir íbúar hurfu undir rústir húsa og skriðuföll færðu allt í kaf.

Í Balakot héraði er ástandið einna verst og líkt við tifandi tímasprengju þar sem þúsundir manna hafa engan aðgang að hreinlætisaðstöðu eða hreinu vatni.

Eftirskjálftar og skriðuföll

Eftir stóra skjálftann 8. október hafa nær 900 minni eftirskjálftar dunið yfir og hafa sumir verið alt að 5 á Richter. Sérfræðingar álita að skjálftavirkni verði á svæðinu í allt að þrjár vikur enn. Þetta gerir hjálparstarf oft mjög erfitt. Tveir hjálparstarfsmenn Alþjóðaneyðarhjálpar kirkna ,ACT, drukknuðu er brú sem þeir voru að fara yfir féll niður þegar eftirskjálfti reið yfir. Sjá þriðji var hætt kominn en félagar hans gátu bjargað honum á síðustu stundu.

Alþjóðaneyðarhjálp kirkna, ACT, sem Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að, hefur nú yfir 200 hjálparstarfsmenn á svæðinu og fer þeim fjölgandi. Strax 9. október hóf Church World Service, CWS, Hjálparstarf kirkjunnar í Noregi og Church of Pakistan, sem eru aðilar að ACT, útdeilingu neyðarpakka. Þessar hjálparstofnanir hafa margra ára reynslu af hjálparstarfi í Pakistan og nærliggjandi löndum. ACT/CWS hefur verið falið að stjórna hjálparstarfi alþjóðlegra félagasamtaka (NGO) á jarðskjálftasvæðinu.

Þörfin á jarðskjálftasvæðinu er gríðarleg og mikið liggur á að hjálp berist sem fyrst. Hjálparstofnanir vinna í kapp við tímann sem er að renna út. Hjálparstarf kirkjunnar hefur þegar veitt 20.000 dollurum úr neyðarsjóði til hjálparstarfa í Pakistan. Á vegum ACT hafa flugvélar með hjálpargögn s.s. tjöld, teppi, neyðarpakka og tæki og tól til að útvega hreint vatn verið sendar til landsins. Hjálparstarfsmenn vinna við erfiðar aðstæður og leggja nótt við dag.

Vantar fé og hjálpargögn

Fórnarlömb jarðskjálftans 8. október eru fleiri en þau sem urðu fyrir barðinu á Tsunami í desember síðastliðinn. Landsvæðið er stærra og miklu erfiðara yfirferðar.

Eftir jarðskjálftann og flóðbylgjuna 26. desember sl. brugðust stjórnvöld og almenningur viða um heim gríðarlega vel og miklir peningar söfnuðust til hjálparstarfi sem enn er verið að nýta. Viðbrögð alþjóðasamfélagsins við þessum hamförum í Pakistan hafa verið allt önnur. Bæði vantar fjármang og hjálpargögn.

Hjálparstarf kirkjunnar skorar á sem flesta að leggja sitt af mörkum. Hægt er að hringja í söfnunarsíma Hjálparstarfsins 907 2002 , leggja inn á tékkareikning nr. 21000 í SPRON eða greiða á heimasíðu Hjálparstarfsins ww. help.is. Ég hvet þig lesandi góður að vera með og leggja líðandi meðbræðrum lið.

Um höfundinn



2 viðbrögð við “Neyðin kallar í Pakistan”

  1. Árni Svanur skrifar:

    Takk fyrir pistilinn Jónas. Það er líka komið inn á þessi mál í prédikun Sveinbjarnar Bjarnasonar Horfum á einstaklinginn sem er birt í Postillunni. Hann segir þar:

    Hjálp við þá sem eru í nauð eftir þessar hamfarir er afar brýn og sagt er að þúsundir muni láta lífið af völdum vetrarkulda á næstu vikum ef frekari hjálp berst ekki í tæka tíð.

    Við höfum öll verk að vinna. Þau sem þjást eru öll systkyn okkar og gildir einu hver er litarháttur þeirra, kyn, trúarbrögð eða annað sem svo gjarna er notað til að greina mannkynið í hópa.

    Tjónið og sá fjöldi sem er í þörf fyrir hjálp veldur því ef til vill að okkur fallast hendur. Við teljum það okkur um megn að hjálpa þessum fjölda. En lítum ekki á hópinn. Lítum á einhvern einn einstakling og sannfærum sjálf okkur um að með okkar framlagi gætum við hjálpað honum eða henni til lífs. Með aðstoð hjálparstofnana getum við þetta.

  2. Jónas Þórir skrifar:

    Ég þakka Sveinbirni fyrir að koma inn á þetta í predikun sinni. Prestar gegna lykilhlutverki í að minna á Hjálparstarfið og þau verkefni sem við erum að sinna. Ég vona að sem flestir þeirra verði ötulir talsmenn Hjálparstarfsins sérstaklega nú þegar neyðin er svona mikil í Pakistan og einnig í desember þegar jólasöfnunin stendur yfir. Tökum höndum saman sem kirkja og kristnir einstaklingar og gerum Hjálparstarf kirkjunnar að öflugri stofnun sem ber Kristi vitni í kærleika.

Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 2533.


Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar