Trúin og lífið
Bænir

Bænastund að morgni

Upphaf

Í nafni Guðs, föður (enni) og sonar (brjóst) og heilags anda (barmur um þvert). Amen.

Guð geymi mig og varðveiti mig á sálu og lífi þennan dag og alla tíma í Jesú nafni. Amen.

Drottinn, opna varir mínar
að munnur minn kunngeri lof þitt.
Guð, lát þér þóknast að frelsa mig.
Drottinn, skunda mér til hjálpar.

Dýrð sé Guði, föður og syni
og heilögum anda.
Svo sem var í upphafi, er og
verður um aldir alda. Amen

Ritningarlestur

Morgunlestur dagsins er að finna í almanakinu.

Morgunbæn

Lista yfir morgunbænir er að finna neðar á þessari síðu.

Niðurlag

Faðir vor, þú, sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
verði þinn vilji
svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér, og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen.
Með himneskri blessun blessi
oss almáttugur Guð,
Faðir, sonur og heilagur andi. Amen.

Morgunbænir

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir