
Hver er heill og hver er sjúkur? Sker sjúkdómsgreining úr um það? Mörgum líður illa þrátt fyrir læknisvottorð upp á heilbrigði og færni. Margir lifa góðu lífi og njóta margvíslegra lífsgæða þrátt fyrir sjúkdóma og jafnvel þjáningar. Sjúkdómur og heilsa, eins og uppeldi, uppruni, vinna, tengsl, eru þættir sjálfsmyndar manns, en enginn einn þáttur felur alla myndina í sér. Sjúkdómurinn, eins og allt annað sem á vegi verður, er hluti lífssamhengis sem er miklu víðtækara og dýpra.
En stundum slær sjúkdómurinn svo hart að sjálft lífið dofnar og lamast. Samhengið slitnar og sjúkdómurinn og þjáningin tekur yfir, víkur öllu öðru til hliðar. Þá er sjúkdómurinn ekki lengur aðeins þáttur lífsins, heldur er lífið orðið hluti sjúkdómsins.
Guð er með mér í lífi mínu og því er Guð einnig með mér í sjúkdómi mínum. Ef til vill spyr ég Guð um orsakir og tilgang, og ef til vill fæ ég í samtali mínu við hinn lifandi Guð að skynja svörin. Þá er þetta persónuleg reynsla. Því enginn getur sagt öðrum að sjúkdómur hans eða hennar eigi sér þessa eða hina orsökina, eða leiði til þessa eða hins innsæisins um merkingu eða tilgang.
Gefur samfélagið við Guð svör við ráðgátum sjúkdóma og þjáningar? Ef til vill. En Guð er ekki fyrst og fremst svar við mínum spurningum heldur samfylgd sem leiðir, armar sem bera gegnum það sem lífið gefur og tekur. Ósk mín um að gát- urnar leysist og spurningarnar gangi upp, má ekki verða til þess að ég missi sjónar á því að Guð er þrátt fyrir allt mér hjá.
Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus