Gakk um greiða vegi landsins
og beinar brautir bæja og borga,
þú heilagi andi.
Strjúk milt yfir slitin, þreytt andlit,
laða bros fram af þjáðum augum svo
trúin vaxi, vonin dafni, dyr lúkist upp
fyrir þeim sem einmana er. Ljúk upp
hliðunum þegar húmar að og hausta
fer, þú haustmildi heilagi andi.
Já, syng um Guð og gleddu þann sem
einmana er, og þau sem finna biturð
og sorg, svo mæddir brosi og blindir
sjái að lífið er ætíð þess vert að því sé
lifað. Blás nýju lífi yfir torg og turna
bæjarins, þú vetrartæri sannleiks
andi.
Þrýst þér gegnum gler og stálveggi
skrifstofanna og viðskiptahallanna
og tendra ljós með mildri hendi Guðs
svo borgin geti ljómað og fagnað
komu hans.
Kom til okkar þegar við óttumst
dóma annarra, þú skapandi máttur
vorsins. Boða okkur að Jesús lifir og
gefur líf eins og hann hefur sagt.
Svo göngum við út í trú á Guð og
lifum óttalaus í sumri náðarinnar.
Holger Lissner
Bænabókin. Leiðsögn á vegi trúarinnar eftir Karl Sigurbjörnsson
Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus