Trúin og lífið
Bænir

Bænabókin á vefnum

Bæn er trúnaðarsamtal við Guð. Við megum tala við hann um allt sem okkur liggur á hjarta. Mikilvægt er að minnast að bænin er líf, andans andardráttur, en ekki reglur og form eða aðferðir til að virkja máttarvöldin.

Ritaðar bænir eru eins og handtak til stuðnings, leiðbeiningar, hjálpar og hughreystingar. Stundum þurfum við slíkt handtak, stundum ekki.

Bænabókin á vefnum er ætluð til að gera bænir aðgengilegar og veita leiðbeiningar um hvernig unnt er að koma reglu á bænalíf sitt, dýpka það og þroska. Hér má finna leiðbeiningar um bænastundir kvölds og morgna og af ýmsum tilefnum. Bænabókin geymir mikið úrval bæna við ýmis tilefni og frá ýmsum tímabilum, sem gott er að grípa til. Bænabókin á vefnum gefur líka kost á því að koma fyrirbænaefnum á framfæri.
Karl Sigurbjörnsson

Flokkun

Kirkjuárið: Annar í hvítasunnu · Annar páskadagur · Boðunardagur Maríu · Dymbilvika · Dymbilvika - kvöld · Dymbilvika - morgun · Fasta · Fasta - kvöld · Fasta - morgun · Fjölmiðlar · Föstudagurinn Langi · Gleðidagarnir - kvöld · Gleðidagarnir - morgun · Gleðidagarnir, fyrri vika - kvöld · Gleðidagarnir, fyrri vika - morgun · Gleðidagarnir, seinni vika - kvöld · Gleðidagarnir, seinni vika - morgun · Hvítasunna · Páskadagur · Sjómannadagurinn · Skírdagur · Stjórnmálin · sunnudagur eftir þrettánda · Uppstigningardagur · Öskudagur · Þjóðhátíð · Þjóðhátíðardagurinn - 17. júní · Þrenningarhátíð
Tími dags: Morgun · Kvöld · Sunnudagur · Mánudagur · Þriðjudagur · Miðvikudagur · Fimmtudagur · Föstudagur · Laugardagur · Sumar · Haust · Vetur
Aðstæður: Hversdagurinn · Skírn · Ferming · Máltíð · Þakkargjörð · Þökk · Þreyta · Ferðabænir · Messa · Sorg · Dauði · Sjúkdómar

Biðja um fyrirbæn

Úr bænabókinni

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir