Undir dögun hvatti Páll alla til að neyta matar og sagði: "Þið hafið nú þraukað hálfan mánuð fastandi og matarlausir. Það er nú mitt ráð að þið matist. Þess þurfið þið ef þið ætlið að bjargast. En enginn ykkar mun einu hári týna af höfði sér." Að svo mæltu tók hann brauð, gerði Guði þakkir í allra augsýn, braut það og tók að eta. Urðu nú allir hressari og fóru líka að matast. Alls vorum við á skipinu tvö hundruð sjötíu og sex manns.
Postularnir sögðu við Drottin: "Auk oss trú!"
En Drottinn sagði: "Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum, og það mundi hlýða yður.
Guð þú laðar oss í kærleika þínum til að trúa því að þú sért vor sanni faðir og vér þín sönnu börn. Gef að vér biðjum þig í öryggi og trausti sem elskuleg börn elskulegan föður. Fyrir son þinn, Jesú Krist, Drottin vorn. Amen. (M. Lúther)
Ó, miklið Guð, þér menn á jörð,
á málum óteljandi,
ó, mikla Guð, þú hólpin hjörð
á himna dýrðarlandi.
(Helgi Hálfdánarson)
„Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.“ (1Pét 5.7)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.