En þér til heiðurs allan tíð
englar drottins og kristnin fríð
hrópar nú bæði á himni og jörð
hósanna, lof og þakkargjörð.
Amen segir og upp á það
önd mín glaðvær í hverjum stað.
Og hann kallaði þá tólf til sín, tók að senda þá út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum. Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti. Þeir skyldu hafa skó á fótum en ekki tvo kyrtla. Og hann sagði við þá: „Hvar sem þið fáið inni, þar sé aðsetur ykkar uns þið leggið upp að nýju. En hvar sem ekki er tekið við ykkur né á ykkur hlýtt, þaðan skuluð þið fara og hrista dustið af fótum ykkar þeim til viðvörunar.“
Filippus fór norður til höfuðborgar Samaríu og prédikaði Krist þar. Menn hlýddu með athygli á orð Filippusar þegar þeir heyrðu hann tala og sáu táknin sem hann gerði. Margir höfðu óhreina anda og fóru þeir út af þeim með ópi miklu. Margir lama menn og haltir voru læknaðir. Mikill fögnuður varð í þeirri borg.
Algóði Guð. Við biðjum þig fyrir þeim sem mikið hafa orðið að reyna , fyrir þeim sem lífið er þraut, fyrir þeim sem áttu draum sem ekki rættist og grófu vonir sínar, og fyrir þeim sem eiga þrá en enga von , að þau verði ekki beisk og harðúðug. Drottinn, miskunna þú oss. Amen.
Ó, lækna, Jesús, líf mitt allt,
ó lát það vermast, sem er kalt,
það vökva fá, sem visna fer,
það verða hreint, sem flekkað er,
það auðgast, sem er aumt og snautt,
það endurlifna, sem er dautt.
(Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson)
„En Jesús sagði við hann: „Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur er hæfur í Guðs ríki.““ (Lúk 9.62)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.