Trúin og lífið
Almanak – 9. mars 2010

Um Heródis forvitni og hvíta klæðið

Guð gjörir ekki að gamni sér
glæpamönnum að hóta.
Kallsmælgi honum og engin er,
að þú megir miskunn hljóta.
Auðmjúklega með allri gát
áttu um slíkt að ræða
og fleiri fræða.
En af þér heyrast aldrei lát,
orð drottins skulir þú hæða.

Úr 21. Passíusálmi

Morgunlestur: Job 7.11-21

Hvað er maðurinn, að þú metir hann svo mikils
og sýnir honum umhyggju,
vitjir hans hvern morgun
og reynir hann hverja stund?
Hvenær ætlarðu að líta af mér,
sleppa af mér hendinni eitt andartak?

Kvöldlestur: Mrk 14.43-52

Þá sagði Jesús við þá: „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega var ég hjá ykkur í helgidóminum og kenndi og þið tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.“

Bæn

Faðir miskunsemdanna og Guð allar huggunar. Við biðjum fyrir hinum blindu og mállausu, fyrir öllum fötluðum til líkama og sálar , fyrir öllum eyrðarlausum, vegvilltum og sjúkum á sinni, fyrir öllum sem þarfnast sérstakrar umhyggju og umönnunar og þolinmæði, og fyrir öllum þeim sem annast þau. Drottinn, miskunna þú oss. Amen.

Sálmur (sb. 0)

Ef fellir hann mig, fljótt mig reis,
ef fjötrar hann mig, brátt mig leys,
ef villir hann mig, blítt mér bend,
ef blindar hann mig, ljós mér send,
ef skelfir hann mig, legg mér lið,
ef lokkar hann mig, þú mig styð.
(Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson)

Minnisvers vikunnar

„En Jesús sagði við hann: „Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur er hæfur í Guðs ríki.““ (Lúk 9.62)

Yfirlit

Um almanakið

Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.


Nafn:
Netfang:

Almanak
Sálmabók
Bænir