Þá sagði Jesús: „Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu, með frændfólki sínu og heimamönnum.“ Og hann gat ekki gert þar neitt kraftaverk nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá. Og hann undraðist vantrú þeirra.
Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er himnaríki mustarðskorni sem maður tók og sáði í akur sinn. Smæst er það allra sáðkorna en nær það vex er það öllum jurtum meira, það verður tré, og fuglar himins koma og hreiðra sig í greinum þess.“
Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er himnaríki súrdeigi er kona tók og fól í þrem mælum mjöls uns það sýrðist allt.“
Andspænis illsku og ranglæti vil ég ekki missa móðinn, heldur vil ég rísa upp og standa með því sem er rétt og satt, og ég vil horfast í augu við framtíðina með hugrekki, friði og gleði. Amen.
Minn Jesús, kunnugt það er þér,
hve þrátt sá óvin ræðst að mér,
er vill í glötun svíkja sál,
frá sannleiks orðum beygja mál,
frá verki réttu hefta hönd
og hneppa líf í synda bönd.
(Helgi Hálfdánarson)
„Svo segir: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni.““ (Heb 3.15)
Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.